Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.09.1985, Qupperneq 82

Tímarit Máls og menningar - 01.09.1985, Qupperneq 82
Tímarit Máls og menningar stundarkorn til að átta sig. Hann stansaði nokkrum sinnum til að spyrja vegfarendur hvar hótelið væri. Illfært var um götur bæjarins og það tók þau rúmlega fimmtán mínútur að komast til hótelsins, sem þó var örskammt frá (að sögn vegfarendanna), eftir ótal króka og útúrdúra. Hótelið leit ekki út fyrir að vera neitt sérlega vistlegt, en þetta var eina hótelið í bænum og ungi maðurinn var orðinn þreyttur á akstrinum. „Bíddu eftir mér hérna,“ sagði hann og steig út úr bifreiðinni. Um leið og hann steig út úr bifreiðinni varð hann auðvitað hann sjálfur aftur. Honum féll allt í einu illa að vera kominn svona á óvæntan stað; sérstaklega af því að enginn hafði neytt hann þangað og í rauninni hafði hann aldrei ætlað þangað. Hann nagaði sig í handarbökin fyrir kenjarnar, síðan ákvað hann að hætta að hugsa um þetta: herbergið biði þeirra til morguns, og hvað var svo sem að því að halda upp á fyrsta frídaginn þeirra með eilitlu hliðarhoppi? Hann gekk í gegnum matsalinn — fullan af reyk, hávaða og fólki — og spurði um gestamóttökuna. Honum var bent innst í ganginn, við stigann, þar sem þrifleg ljóska trónaði framan við þunghlaðna lyklatöflu; það var rétt svo að hann fengi síðasta herbergið sem laust var. Þegar unga stúlkan var orðin ein losnaði hún líka úr hlutverkinu. Hún var alls ekkert ósátt við að þau hefðu sveigt af leið. Hún treysti vini sínum nægilega til að þurfa ekki að velta fyrir sér öllum hans gerðum. En skyndilega hvarflaði að henni að aðrar ungar konur sem hann hafði hitt hefðu beðið eftir honum í þessari bifreið rétt eins og hún á þessari stundu. Skrítið, tilhugsunin olli henni ekki minnstu óþægindum; hún brosti með sér þegar hún hugsaði til þess að í hans augum væri hún ókunnug kona, léttlynd og kæru- laus, ein þessara kvenna sem gerðu hana svo afbrýðisama; hún þóttist nefnilega hafa snúið á þær; fundið leið til að afvopna þær; geta loks veitt vini sínum það sem henni fannst hún ekki hafa getað veitt honum áður: áhyggjuleysið, hreinskilnina, frelsið; hún fann til sérstakrar velsælu þegar hún hugsaði til þess að hún ein væri fær um að setja sig í spor allra hinna kvennanna og að þannig gæti hún (hún ein) sölsað undir sig gjörvalla athygli vinar síns og gleypt hana eins og hún legði sig. Ungi maðurinn opnaði dyrnar og bauð ungu stúlkunni að ganga 344
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104
Qupperneq 105
Qupperneq 106
Qupperneq 107
Qupperneq 108
Qupperneq 109
Qupperneq 110
Qupperneq 111
Qupperneq 112
Qupperneq 113
Qupperneq 114
Qupperneq 115
Qupperneq 116
Qupperneq 117
Qupperneq 118
Qupperneq 119
Qupperneq 120
Qupperneq 121
Qupperneq 122
Qupperneq 123
Qupperneq 124
Qupperneq 125
Qupperneq 126
Qupperneq 127
Qupperneq 128
Qupperneq 129
Qupperneq 130
Qupperneq 131
Qupperneq 132
Qupperneq 133
Qupperneq 134
Qupperneq 135
Qupperneq 136
Qupperneq 137
Qupperneq 138
Qupperneq 139
Qupperneq 140

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.