Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.09.1985, Side 94

Tímarit Máls og menningar - 01.09.1985, Side 94
Tímarit Máls og menningar evrópska sker sig úr hvað varðar þrjú atriði. I fyrsta lagi eru vísindin. Framþróun vísindanna, þeirra vísinda sem fleytt hafa okkur fram á öld tækni og kjarnorku, er sköpunarverk Evrópu. I öðru lagi er það tónlistin. Ég ætla ekki að fara að halda því fram að annarsstaðar sé tónlistin óþekkt fyrirbrigði! En eins margslungin, máttug og fullkomin tónlist er óhugs- andi í öðrum menningarsamfélögum. I þriðja lagi er það skáldsagan. Hvergi annarsstaðar hefur hún öðlast slíkan kraft, náð jafnmikilli fjöl- breytni og fullkomnun og hér í Evrópu. Vissulega má nefna fornskáld- söguna, þá japönsku eða kínversku, en þær eru einfaldlega ekki sambæri- legar. A hinn bóginn hafa ýmis önnur menningarsamfélög þróað eins langt, ef ekki lengra, aðrar tegundir listsköpunar, eins og ljóðlistina, byggingarlistina o.s.frv. Skáldsagan hefur því ákaflega mikilvægu hlutverki að gegna í Evrópu. Evrópski maðurinn hefur mótast af skáldsögunni, hann er barn skáldsög- unnar, við erum börn skáldsögunnar. Þú hefur sagt ad nú sé ekki lengur hœgt að tala um skáldsöguna í þjóðlegu samhengi, heldur verði að setja hana í samhengi heimshókmennt- anna. Hvað áttu við með því? Goethe var fyrstur manna til að vekja máls á þessu og raunar samdi hann dálitla kenningu í kringum þessa hugmynd. Hann sagði: „Við lifum á tímum heimsbókmennta en ekki á tímum þjóðarbókmennta.“ Þar á hann við að ef menn vilja skilja til hlítar listrænt gildi og merkingu einhvers verks, verða þeir að setja það í víðara samhengi, segjum evrópskt. Þetta tengist alveg því sem ég sagði áðan: skáldsagan er evrópskt sköpunarverk. Hún er samofin örlögum Evrópu og ef skáldsagan hverfur fer ekki hjá því að það hefur örlagaríkar afleiðingar fyrir evrópskan hugsunarhátt. Nú ert þú evrópskur rithöfundur eða nánar tiltekið miðevrópskur. Hver er sá menningararfur sem miðevrópska skáldsagan hefur látið okkur í té, okkur börnum skáldsögunnar? Menningararfur miðevrópsku skáldsögunnar er einkum sköpunarverk einnar kynslóðar. Það er kynslóð þeirra rithöfunda sem fæddir eru í kring- um 1880. Einkum er þar um að ræða þrjá menn: Franz Kafka, Hermann Broch og Robert Musil. Ein hörmunga Evrópusögunnar, innrás Rússa í Tékkóslóvakíu árið 1968, kemur oft við sögu í verkum þínum. Nú upplifðir þú rússnesku innrásina á sínum tíma, er h<egt að kalla skáldsögur þínar sjálfsævisögu- legarf Nei, ekki er það nú. Hjá ýmsum núlifandi rithöfundum tekur sjálfsævi- sögulegi þátturinn æ meira rúm, en ég fyrir mína parta er ekkert sérlega hrifinn af þessari stefnu og það er ekki hægt að heimfæra hana upp á 356
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.