Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.09.1985, Qupperneq 96

Tímarit Máls og menningar - 01.09.1985, Qupperneq 96
Tímarit Máls og menningar láta þýða verkið skrifar maður óhjákvæmilega með þýðandann sinn í huga. Maður spyr sig stöðugt hvort hann skilji nú örugglega hvað maður sé að fara. Því reynir maður að vanda orðavalið og aga stílinn. Eg legg enn meiri áherslu á að vanda málfarið, í mínu tilfelli tékkneskuna — í þínu tilfelli væri það íslenskan. Þótt þú segir eitthvað sem ekki er hárrétt skilur Islendingur undireins hvað þú ert að fara því hann er vanur hvers kyns skírskotunum og ónákvæmni eigin máls. En ef þú á hinn bóginn ávarpar mann sem hefur lært málið á fullorðinsaldri finnur þú strax að hann er næmari á ónákvæmni í orðafari. Onákvæmni sem ekki mundi snerta ís- lenskan viðmælanda. Þú takmarkar sem sagt notkun orðaleikja og slíkra stílbragða? Nei, það er ekki það að ég takmarki eitt eða neitt. Sjáðu til. Maður skrifar setningu sem lítur ljómandi vel út á tékknesku. Svo þegar setningin er þýdd sér maður skyndilega, í spegli þýðingarinnar, að setningin er dálítið ónákvæm. Þá skrifar maður setninguna upp á nýtt og fyrir atbeina þýðingarinnar verður setningin betri. Þýðingin varpar ljósi á veiku hlekk- ina, t.d. þegar maður gerist óþarflega fjölorður um eitthvað. Ég hef alltaf notað fremur hefðbundið, einfalt og skýrt mál þannig að þessi vinna fellur alveg við minn stíl. Ég legg enn meiri áherslu á að málfarið sé skýrt og hnitmiðað. Það er því síður en svo hindrun fyrir mig að þurfa að láta þýða verkin til birtingar. Þú hefur skrifað afar athyglisverðar hugleiðingar um stöðu smáþjóða. A hverju getur tilvera smáþjóðar byggst núi Hvers vegna ekki að hverfa í fang þeirra stóru ? Þetta er náttúrlega eilíf spurning og hún skilgreinir einmitt hugtakið smáþjóð. Tilvera smáþjóðarinnar vekur sífelldar spurningar og er einlægt vanda undirorpin, þess vegna neyðist smáþjóðin til þess að velta sífellt fyrir sér merkingu tilverunnar. Enginn Rússi eða Ameríkani spyr sig spurninga eins og: væri ekki betra að verða annar? eða: hefur heimurinn einhverja þörf fyrir mig? Þeir eru, þeir eru til og dettur aldrei í hug að spyrja sig slíkra spurninga. Þess vegna eru þeir svolítið heimskari en við! Við gerum okkur ljóst að tilvera okkar vekur spurningar, og eins að við getum horfið einn góðan veðurdag. Ef við erum íslenskir eða tékkneskir verðum við að réttlæta tilveru okkar án afláts. Hvernig getum við réttlætt tilveru okkar? Einkum á sviði menningarinnar, með því að sýna fram á að okkar viðhorf til tilverunnar sé áhugavert, dálítið öðruvísi, og að þetta sjónarmið geti hugsanlega auðgað heimsmenninguna. Smáþjóðirnar gera sér líka ljóst að þær geta liðið undir lok. Það er meira en hægt er að segja um Rússa og Ameríkana. En þeir eru líka dauðlegir, öll ríki eru dauðleg, meira að segja stærstu heimsveldin. Þau gera sér bara ekki 358
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104
Qupperneq 105
Qupperneq 106
Qupperneq 107
Qupperneq 108
Qupperneq 109
Qupperneq 110
Qupperneq 111
Qupperneq 112
Qupperneq 113
Qupperneq 114
Qupperneq 115
Qupperneq 116
Qupperneq 117
Qupperneq 118
Qupperneq 119
Qupperneq 120
Qupperneq 121
Qupperneq 122
Qupperneq 123
Qupperneq 124
Qupperneq 125
Qupperneq 126
Qupperneq 127
Qupperneq 128
Qupperneq 129
Qupperneq 130
Qupperneq 131
Qupperneq 132
Qupperneq 133
Qupperneq 134
Qupperneq 135
Qupperneq 136
Qupperneq 137
Qupperneq 138
Qupperneq 139
Qupperneq 140

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.