Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.09.1985, Page 134

Tímarit Máls og menningar - 01.09.1985, Page 134
Tímarit Máls og menningar hann er á leið um dimma og þrönga ganga, fer upp eða niður hála stiga, hann gistir á tannlæknastofu, fer á fund í End- urskoðunarfélaginu, þar sem hann fær gullhnöttinn, er svo allt í einu kominn í yfirgefna mjólkurstöð eða í heimsókn á elliheimili, svo eitthvað sé nefnt. Flestar persónurnar sem verða á vegi Jóhannesar eru nafnlausar, þær einu, sem nafngreindar eru, eru börn hans þrjú, Lára, konan hans heitin, svolinn Grímur og svo Hrefna, sem áður getur. Auk þess hittir hann smábústnu nudd- konuna, blaðakonuna uppteknu og kon- una sem hann óttast. En í næsta návígi við Jóhannes er sjómaðurinn nafnlausi, sem er kominn upp að hlið hans fyrir- varalaust hvenær sem er. Hann gerist eins konar fylgdarmaður endurskoðand- ans og sameiginlega bralla þeir margt, m. a. neyta þeir saman kvöldmáltíðar í formi brauðs og víns undir lok sögunnar í kaldri veiðarfærageymslu. 2 En lítum aðeins nánar á örfá atriði af mörgum, sem vert væri og forvitnilegt að fjalla um dálítið ítarlegar. I fyrsta kafla sögunnar segir Hrefna: Ef þú leitar inní sorg þína muntu finna hroka þinn gagnvart mótlætinu, verða lítill í miklum sársauka og síðan auðugur af ró og auðmýkt. En ef þú leitar útúr sorg þinni, áðuren hún hefur náð að blómstra, muntu fara á mis við eymd þína, verða fátækur af þögn og kvalinn af öryggi. Hann var engu nær. En þegar hann hvarf til hennar að skiln- aði stuttu seinna, felldi hann tár niðrí lófa hennar. Hún bar það uppað ljósinu og mælti: — Það er ekki stórt. Samt synda fiskar þínir í því.“ Þessi hugsun er endurtekin í lokakafl- anum nánast orðrétt — en þá er það Hrefna, sem fellir tár niður í lófa Jó- hannesar, og hann ber það upp að ljós- inu og mælir: „Það er ekki stórt. Samt synda fiskar þínir í því.“ Hvað er verið að fara, hlýtur lesand- inn að hugsa. Jóhannes hefur orðið fyrir mótlæti, sem virðist ætla að sliga hann gjörsamlega. Þó rennur það upp fyrir honum síðar, að dauði konu hans er ekki hin raunverulega ástæða fyrir þján- ingum hans, heldur varð hann einungis til þess að afhjúpa miklu djúpstæðari staðreyndir um líf hans, innihaldsleysi þess og firringu frá lífinu sjálfu. Af þeirri vitund, sem í fyrstu er óljós en síðar greinilegri, stafar þjáning hans, og ótti við lífið og dauðann. En búningur þess- arar lífsreynslu og hinnar örvæntingar- fullu baráttu Jóhannesar er ekki hið hversdagslega tungutak fólks. Það, sem einkennir sögu þessa öðru fremur er táknhyggja, sem stundum jaðrar við fár- ánleika eða lygisögustíl eins og áður segir. 3 I texta, sem býr yfir eins mikilli tákn- hyggju og skáldsagan Maður og haf, þá hætta orðin að hafa sína hversdagslegu merkingu. Orð eins og haf, fiskur og tár eru hlaðin fornri táknmerkingu. Slík tákn eru rótfest í vitund mannsins, að því er virðist, og skírskota til sams konar skynjunar öld eftir öld, árþúsund eftir árþúsund, þótt þau merki kannski ekki alltaf nákvæmlega það sama. Rithöfund- ur, sem hættir sér út á hinn hála ís táknmálsins, býður lesandanum upp á tvíræðan texta og þar með fleiri en eina leið til skilnings og túlkunar. En sá sem grípur til táknmálsins eys líka úr gömlum og gjöfulum brunni. Það 396
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.