Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.03.1997, Side 34

Tímarit Máls og menningar - 01.03.1997, Side 34
GUNNAR J. ÁRNASON Saga listarinnar er oftast nær skrifuð sem saga þeirra manna eða afla sem mest hafa mótað framvindu listarinnar, þar sem leitað er sögulegra orsaka, hver hafí haft áhrif á hvern, hvar valdið liggur á hverjum tíma. 1 þessari sögu verða vissir einstaklingar aðalpersónur í miðju atburðarásarinnar, á meðan flestir aðrir eru annað hvort ekki í aðstöðu til að hafa áhrif á ffamvindu mála eða virðast dangla lausir og vera að fást við hluti sem eru hættir að skipta máli. Það má einnig sjá hvernig miðjuhugsunarhátturinn kemur fram í umræð- unni um leitina að kjarnanum í listinni, því sem skiptir hana mestu máli og gefur henni mest gildi, gagnvart öllu því sem er yfirborðskennt eða tengist henni lauslega og eru jaðarfyrirbæri að því leyti að þau skipta ekki meginmáli fyrir innsta eðli hins listræna starfs. Að lokum má ekki gleyma hinni miklu áherslu á höfiindinn og persónu hans, sem einkennir nútímann. Ekki aðeins dýrkun á vissum höfundum, hinum miklu meisturum nútímalistarinnar, heldur einnig því sem býr innst inni í sálarfylgsni hvers skapandi manns, s.s. skapandi starf sem leitin að því sem býr innst inni í sálarlífi hvers um sig. Ég skal ekki dæma um það hvort þessi miðlægi hugsunarháttur, þar sem allt sem er á jaðrinum hverfist um það sem liggur í miðjunni, sé einkennandi fyrir módernismann. Það má eflaust finna dæmi sem bæði staðfesta þá skoðun og hrekja, en af einhverjum ástæðum þá hafa and-miðju skoðanir verið áberandi í póstmódernískri hugsun. Fréttir hafa borist um að listmiðstöðvarnar séu ekki lengur eins mikilvæg- ar og áður, að heimurinn hafi skroppið saman vegna samskiptatækni — nú eiga allir að geta verið með. Hugmyndafræði og miðstýringu er hafnað; það er ekki lengur nein ein listasaga, heldur margar, sagðar frá ólíkum sjónarhornum, sem allar eiga rétt á sér, jafnvel þótt þær stangist á; minnihluta- og jaðarhópar sem áður voru útundan lenda nú í sviðsljósinu; öll skil milli hámenningar og lágmenningar eru smám saman að leysast upp. Enginn trúir lengur á sannleikann um listina. Það fer ekki fram nein barátta um sögulegt leiðtogahlutverk; við lifum á tímum fjölhyggju þar sem „sannleikurinn“ hefur gjaldfallið. Jafnvel sjálfið virðist ekki eiga sjö dagana sæla; höfundurinn er dauður, við erum ekki ein persóna heldur margar; listaverk eiga sér ekki neina eina uppsprettu, heldur eru þau ofin úr marglitum þráðum sem enginn veit hvaðan koma né hvert þeir liggja. Ekki ætla ég að steypa mér út í deilur um upplausn miðjunnar. Enda höfum við, hér á útnára, fengið síðbúnar fréttir af því að við erum ekki lengur á 24 TMM 1997:1
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.