Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.03.1997, Page 39

Tímarit Máls og menningar - 01.03.1997, Page 39
Á BÁÐUM ÁTTUM að. Ef við ættum að draga saman hvað felst í þessari arfleifð þá mætti nefna eftirfarandi boðorð gagnrýnandans. • Gagnrýni skal styðja og hvetja heimaræktaða myndlist. • Gagnrýni er brjóstvörn gegn erlendum áhrifum sem lauma sér inn í íslenskt menningarlíf. • Öll gagnrýni byggist á persónulegri sýn, sem þýðir tvennt. • Hver og einn verður að reiða sig á eigið brjóstvit. • Allt sem þarf til að meta og dæma um gæði listaverka er til staðar í íslenskum veruleika, hvort sem það er sameiginleg menning eða þjóðarvitund. • Varast skal hugmyndafræði, merkimiða og framandi tískur. Ég ætla ekki að fara út í að gagnrýna slíka hugmynd um „persónulega sýn“, þótt það sé ýmislegt sem mæli gegn henni. Því jafnvel þótt við gæfum okkur að hún stæðist þá lendir gagnrýni sem byggir á slíku viðhorfi í ógöngum. Til að byrja með þá gerir hún nánast út af við hugmyndina um gagnrýni sem slíka og snýr henni upp í andstæðu sína. Gagnrýni, hvort sem hún beinist að myndlist eða einhverju öðru, sprettur af viðleitni til að finna sameiginlegan grundvöll fýrir skiptar skoðanir. Jafnvel þótt hún lýsi skoðunum einstaklings þá er henni beint að ótilgreindum hópi manna til að fá þá til að skoða og hugsa með gagnrýnandanum, gefa færi á íhugun, endurskoðun og hlutlægu mati. Gagnrýni er ekki ætlað að festa í sessi þögult samkomulag byggt á dularfullu sálrænu lögmáli. Þvert á móti þá sprettur gagnrýni upphaflega af þeirri þörf að staðsetja sig utan við fyrirframgefið samkomulag eða norm. Hættan er líka sú að áherslan á perónulega sýn hafi þveröfug áhrif, þ.e.a.s. í staðinn fýrir að hver og einn reiðir sig á eigið brjóstvit þá reiða flestir sig í blindni á brjóstvit einhvers annars, sem sagt þess sem þeir treysta best, sem við getum kallað, „fulltrúa fólksins" eða „fulltrúa okkar“ í málefnum listar- innar,- Einhvern sem hefur áunnið sér tiltrú meðal almennings og sem hann treystir fýrir því vandaverki að afhjúpa loddarana og krýna meistarana. En gagnrýnendur eiga ekki að vera gúrúar sem leggja blessun sína yfir lista- menn, sérstaklega ekki í smærri samfélögum eins og íslandi þar sem gagn- rýnendur eru oft á tíðum einnig listamenn. Óstaðbundin gagnrýni Aðstæður hafa breyst töluvert og gagnrýni sömuleiðis, bæði hefur listheim- urinn breyst, og einnig íslenskt listalíf. Stöðugur straumur ungra listamanna berst úr öllum áttum og aðgangur að upplýsingum um myndlist hefur aukist jafnt og þétt. Nú er krafan um að líta á hinn íslenska listamann sem fullgildan TMM 1997:1 29
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.