Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.03.1997, Qupperneq 82

Tímarit Máls og menningar - 01.03.1997, Qupperneq 82
SOFFÍA AUÐUR BIRGISDÚTTIR haust2. Einnig hefur sagan sjálf nýlega verið endurútgefin hjá Hinu íslenska bókmenntafélagi. Þótt rúmlega tvær aldir skilji þessar tvær skáldsögur frá nefndri kvikmynd tel ég að öll verkin þrjú eigi rætur sínar að rekja til þeirrar greinar bókmennt- anna sem kallast skálkasögur (la novela picaresca)3. Öll verkin þrjú hafa unga karlmenn sem aðalpersónu og „skoðanda“ þess sem fyrir þá ber í rás frásagnarinnar. Öll lýsa þau ferðalagi þessarar persónu um heiminn og samskiptum hennar við ótal aðrar persónur. í öllum þremur verkunum eru heimspekilegar vangaveltur um tilvist mannsins áberandi og þá sérstaklega um hvort örlög mannsins séu fyrirfranr ákveðin (forlagahyggja) eða hvort hann ráði örlögum sínum sjálfur (sé frjáls). í öllum þremur verkunum er frásagnaraðferðin mörkuð gráglettni og íroníu sem skipar þeim í flokk heimspekilegra skemmtibókmennta.4 Skálkasögur Vitaskuld flokkast ekkert þessara verka sem hreinræktuð skálkasaga, enda er sú skilgreining bundin við mun eldri bókmenntaverk. En ég tel þó að þær eigi rætur sínar að rekja til þessarar fornu bókmenntategundar sem hefur haft víðtæk áhrif á bókmenntir síðustu þriggja alda. Hugtakið skálkasaga er, líkt og önnur bókmenntahugtök, víðtækt og hefur í tímans rás orðið nokkurs konar „regnhlífarhugtak“, það er að segja að undir það eru í dag felldar frásagnir frá ýmsum svæðum og tímaskeiðum. Þetta notfæri ég mér þegar ég dreg saman til umfjöllunar sögur frá átjándu öld og nýlega kvikmynd. Engu að síður takmarkast hugtakið við ákveðna þætti, ella væri það gagns- laust sem skilgreiningarhugtak. Skálkasögurnar komu fýrst fram á Spáni um miðbik sextándu aldar sem andsvar við riddarasögum sem þá nutu mikilla vinsælda lesenda. Gegn hetju riddarasagnanna var stefnt andhetju sem flakkar um heiminn og afhjúpar með athöfnum sínum og orðum þá rómantísku blekkingu um menn og málefni sem riddarasögurnar upphefja. í bókmenntafræðum hefur náðst sátt um tvö megineinkenni sem frásagnir verða að hafa til að geta fallið undir skilgreiningarheitið. í fyrsta lagi eru þetta frásagnir af flökkurum af lágum stigum, lífí þeirra og samskiptum við þá sem þeir mæta á ferðum sínum. I öðru lagi er hér um að ræða ákveðinn frásagnarhátt sem skilur sig frá frásagnarhætti annars konar bókmenntategunda.5 Þessi frásagnarháttur er af ætt satírunnar, grín er gert að mönnum og málefnum og, í síðari tíma skálkasögum (til að mynda í Birtingi og Jakobiforlagasinna og meistara hans), að heimspekistefnum þeim sem efstar voru á baugi í því umhverfi sem 72 TMM 1997:1
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104
Qupperneq 105
Qupperneq 106
Qupperneq 107
Qupperneq 108
Qupperneq 109
Qupperneq 110
Qupperneq 111
Qupperneq 112
Qupperneq 113
Qupperneq 114
Qupperneq 115
Qupperneq 116
Qupperneq 117
Qupperneq 118
Qupperneq 119
Qupperneq 120
Qupperneq 121
Qupperneq 122
Qupperneq 123
Qupperneq 124
Qupperneq 125
Qupperneq 126
Qupperneq 127
Qupperneq 128
Qupperneq 129
Qupperneq 130
Qupperneq 131
Qupperneq 132
Qupperneq 133
Qupperneq 134
Qupperneq 135
Qupperneq 136
Qupperneq 137
Qupperneq 138
Qupperneq 139
Qupperneq 140

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.