Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar - 01.01.2009, Síða 19
SPEGLUN OG SPEGILMYNDIR
19
heldur þau sneru að menningar- og menntamálum eða þjóðfélags- og
stjórnmálum. Öfgar til hægri og vinstri voru algengar og málamiðlanir
voru svik við einhvern tiltekinn málstað. Kúbverski kvikmyndaleikstjórinn
García Espinosa kallaði eftir svonefndum „ófullkomnum kvikmyndum“,
en í því fólst eins konar andsvar við fegruðum ímyndum um menn og mál-
efni sem streymdu frá Hollywood.29 Bólivíski kvikmyndagerðarmaðurinn
Jorge Sanjinés hafnaði hugmyndinni um imperíalískt innihald og hug-
myndafræði og hvatti til þess að framleiddar væru myndir sem snerust um
fólk og samfélag alþýðu.30 Hann ítrekaði að „byltingarkenndar myndir
gætu einungis verið samfélagslegar, rétt eins og byltingin“.31
Til að skilja betur það sem í dag gætu virst öfgafullar og einstrengings-
legar áherslur er rétt að rifja upp að einræðisstjórnir voru víða við völd í
sunnanverðri Rómönsku Ameríku á þessum árum. Einræðisherrann
Alfredo Strössner réði Paraguay í 35 ár – eða frá 1958 til 1993. Augusto
Pinochet hershöfðingi rændi völdum í Chile árið 1973 og sat á forsetastóli
allt til 1990. Í Argentínu tók herinn völdin árið 1976 og hélt þeim til
1983. Einræðisöfl með herinn í broddi fylkingar réðu Úrúgvæ á árunum
milli 1973 og 1985 og herinn réði ríkjum í Brasilíu frá 1964 til 1985. Þótt
stjórnaraðferðir yfirvalda væru ekki alls staðar með nákvæmlega sama
hætti þá voru þúsundir mennta- og stjórnmálamanna, verkalýðsleiðtoga
og vinstrisinnaðra aktívista teknir höndum á þessum áratugum. Fólki var
haldið föngnu án dóms og laga, það sent í útlegð eða einfaldlega tekið af
lífi. Enn aðrir hurfu sporlaust úr varðhaldi og ekkert hefur til þeirra spurst
allt til dagsins í dag.32 Það er því ekki að undra að kröftug andspyrna og
hörð mótmæli hafi mótað alla þjóðfélags- og stjórnmálaumræðu í álfunni
á seinni hluta tuttugustu aldar og að þessar aðstæður hafi verið efniviður í
bókmenntum, kvikmyndum og annarri listsköpun álfunnar á sama tíma.
Breski fræðimaðurinn John King hefur vakið athygli á því að viðbrögð við
kvikmyndaframleiðslu Rómönsku Ameríku frá þessum árum hafi um
margt verið mótsagnakennd:
Challenges, London: Thousand Oaks, 2003 og Thomas E. Skidmore og Peter H.
Smith, Modern Latin America, Oxford: Oxford University Press, 1997/2004.
29 Stephen M. Hart, A Companion to Latin American Film, bls. 10.
30 Jorge Sanjinés, „Problems of Form and Content in Revolutionary Cinema“, New
Latin American Cinema: Theory, Practices and Transcontinental Articulations, ritstj.
Michael T. Martin, Detroit: Wayne State University Press, 1997, bls. 62–70.
31 Sanjinés, „Problems of Form and Content in Revolutionary Cinema“, bls. 34.
32 Sjá nánar t.d. www.madresfundadoras.org.ar.