Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar - 01.01.2009, Page 87
87
SOR JUANA SVARAR FYRIR SIG
ruido) honum tengdum. Það kemur því ekki á óvart að Svarið er byggt upp
eins og málsvörn fyrir rétti; Sor Juana er í raun fyrir rétti, rannsóknar-
réttinum, sem hafði vökult auga með öllum sínum þegnum. Þó að Svarið
sé persónulegt fylgir bygging þess klassískri mælskulistarhefð. Sor Juana
fylgir forskrift Rómverjans Ciceros76 um hvernig best sé að byggja upp
vörn. Það sem í fyrstu virðist vera sendibréf er í raun varnarræða þar sem
Sor Juana heldur uppi vörnum fyrir rétt sinn til þekkingar og fræðastarfa.
Í söngtexta sem Sor Juana samdi segir „kyn er ekki forsenda vitsmuna“77
og það er einmitt kjarni Svarsins: að verja rétt kvenna til vitsmuna og þekk-
ingar. Að auki er það til merkis um yfirburðaþekkingu hennar á fjölmörg-
um sviðum. Hún var enginn byltingarsinni hvað form varðar og fylgir
hinni klassísku hefð, en notar hana hins vegar fimlega til að verja sig og
gagnrýna þá sem að henni veittust.
Ef litið er á byggingu bréfsins fylgir það mælskulistarhefðinni; það
hefst á ávarpi, síðan kemur ævisöguleg frásögn, vörn, bænaskrá og niður-
staða. Í fyrsta hlutanum beitir Sor Juana kunnu mælskulistarbragði, upp-
gerðarhógværð, hún afsakar sig, útskýrir af hverju hún svarar fyrir sig,
reynir að ná viðmælanda sínum á sitt band og undirbýr málsvörnina. Hún
upphefur viðtakanda bréfsins á sinn eigin kostað samkvæmt aðferð róm-
verska mælskulistarmannsins Quintilians.78 Sor Juana var vel kunnug
verk um hans þar sem hún minnist á hann oftar en einu sinni í Svarinu.
Næst kemur ævisöguleg frásögn þar sem Sor Juana lýsir óseðjandi og
ævarandi fróðleiksþorsta sínum, hvernig hún lærði að lesa á unga aldri og
þrá sinni eftir formlegri menntun. Í þessum hluta leggur Sor Juana áherslu
á að þekkingarleit hennar sé gjöf Guðs sem hún hafi litla stjórn á en geti
þó varla verið Guði mótdræg þar sem almætti hans hafi úthlutað henni
þessari hvöt. Hún segir frá þörf sinni til að læra guðfræði og bendir á að
hún sé „dóttir heilags Híerónýmusar og heilagrar Pálu, svo það væri
úrkynjun ef dóttir svo lærðra foreldra væri fábjáni“.79 Þá kemur málsvörn-
in og tveir síðustu hlutar Svarsins sem eru bænaskrá og niðurstaða.
76 Cicero fæddist árið 106 f.Kr. Hann skrifaði bókina De Oratore um mælskulist og
var á 17. öld talinn fyrirmynd í öllum bréfaskriftum; Pamela Kirk, Sor Juana Inés de
la Cruz. Religion, Art, and Feminism, bls. 96.
77 „[E]l sexo, no es escencia en lo entendido“; Sor Juana Inés de la Cruz, The Answer/
La respuesta, bls. 160.
78 Marcus Fabius Quintilianus (35–95 e.Kr.). Hann skrifaði bókina Institutio Oratoria
um mælskulist.
79 Sor Juana Inés de la Cruz, The Answer/La respuesta, bls. 52. Heilagur Híerónýmus
og Pála eru kaþólskir dýrlingar.