Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar - 01.01.2009, Síða 55
„ÞIÐ HLUSTIÐ ALDREI Á OKKUR“
55
af hinu hversdagslega lífi borgarinnar sem og hinum flókna heimi landa-
mæranna í Callejón Sucre y otros relatos (Sucrestígur og aðrar sögur).38 Þetta
er safn sex smásagna og einnar langrar smásögu eða nóvellu. Efniviður
þeirra er oft af klassískum toga: ást, dauði, einmanaleiki, en sögusvið þeirra
allra er borgin Ciudad Juárez og systurborg hennar, El Paso. Lesandinn
fylgir sögupersónum um ýmsa staði borgarinnar, m.a. miðbæinn og túr-
istahverfið með öllum sínum börum, veitingastöðum og mörkuðum en
einnig fátækrahverfi, og á þann hátt kynnist hann smám saman borginni.
Einnig ýmsu sem tengist mörkunum sjálfum: vírgirðingum, ánni Río
Bravo/Río Grande sem skilur að borgirnar, brúm og svæðinu meðfram
ánni sem hefur verið veitt í stokka. Þetta umhverfi er dregið fram á síðum
bókarinnar sem eðlilegur hluti af landslagi og daglegu lífi borgarbúa. Í
sögunum kemur fram að það er mikill samgangur á milli borganna og
hvernig þær eru beinlínis háðar hvor annarri á ýmsan hátt. Einnig má sjá
hvernig mörkin virðast stundum algerlega óyfirstíganleg en stundum eru
þau hreinlega ekki til. Sagan „Bajo el puente“ (Undir brúnni) segir frá
Mere, ungri stúlku sem vinnur á veitingastað en hún hefur aldrei farið yfir
mörkin til El Paso. Martín, kærasti hennar, vinnur við að ferja fólk ólög-
lega yfir ána á gúmmíslöngu. Ferðir þessa fólks skapa atvinnu og í sögunni
má sjá hvernig ungir menn bítast um þessa vinnu. Dag einn stendur fjöldi
fólks undir svonefndri Svörtubrú og bíður þess að vera ferjaður yfir í
brennandi eyðimerkurhitanum, en umræddan dag ætlar Martín að ferja
sína heittelskuðu yfir og verja síðdeginu í El Paso. Alla sína tíð hefur Mere
horft að sunnan á háhýsin í systurborginni en aldrei haft löngun né þörf
fyrir að fara þangað. Hér virðist höfundur vilja sýna fram á að það er ekki
endilega draumur allra borgarbúa að fara yfir mörkin til að upplifa „amer-
íska drauminn“ eins og margir vilja halda. Í sögunni dregur Sanmiguel
fram togstreituna milli landanna. Hún veldur því að löndin nánast toga
hvort annað til sín um leið og þau hrinda hvort öðru frá sér eins og fyrr
sagði. Landamæraverðir koma við sögu, og má sjá hvernig þeir og Martín
ýmist vinna saman eða gegn hver öðrum. Martín hefur gert landamæra-
verði nokkrum ótal greiða og landamæravörðurinn hefur í staðinn litið
framhjá ferjuflutningi hans. Óskráðar reglur virðast gilda en nú hefur
Martín komið sér í vandræði því hann hefur farið yfir strikið: hann fór
með Mexíkana of langt inn í landið, alla leið upp að ökrunum í Nýju
38 Bókin kom út árið 1994 hjá Ediciones del Azar en var endurútgefin árið 2004,
Tijuana/Ciudad Juárez/Las Cruces: El Colegio de la Frontera Norte/Universidad
Autónoma de Ciudad Juárez/New Mexico State University.