Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar - 01.01.2009, Síða 56

Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar - 01.01.2009, Síða 56
KRISTÍN GUÐRÚN JÓNSDÓTTIR 56 Mexíkó til að vinna við chilitínslu. Sögunni lýkur á því að Martín ferjar stúlkuna sína yfir og á miðri leið þegar hún virðir fyrir sér skýjakljúfana í El Paso, auglýsingaspjöldin og fjöllin, er ferjumaðurinn skotinn til bana og hverfur í ána, ána sem sundrar og sameinar á sinn undarlega hátt. Mere situr eftir á slöngunni skelfingu lostin og áttar sig ekki á því hvað hefur gerst. Allir eru horfnir af Svörtubrú. Hana svíður í augun í hitanum, hún klemmir þau saman og sér þá „þögnina sem áin fleytir áfram“, eins og höf- undur segir.39 Í þessari mynd árinnar falla náttúran og mannkynssagan saman og sú þögn sem umlykur allt hið nafnlausa fólk sem aldrei fékk til- vistarrétt í sögunni. Í nóvellunni „El reflejo de la luna“ (Mánaskin) dregur höfundur fram hinn flókna heim sem hefur myndast við mörkin; þar kemur berlega í ljós hversu óskýr línan er. Vissulega aðskilur hún tvær þjóðir en samfélögin beggja vegna eru marglagskipt og oft erfitt að henda reiður á þeim. Mörkin fela ekki einvörðungu í sér togstreitu milli tveggja ólíkra þjóða, engilsax- neskrar og mexíkanskrar menningar, heldur líka milli ýmissa annarra hópa og innan þeirra. Hér þarf að hafa í huga að meirihluti íbúa landamæra- borganna norðan megin er almennt af mexíkönsku bergi, því vilja borg- irnar oft vera eins og „áframhald“ syðri borganna. Í sögunni skyggnist Sanmiguel inn í líf Mexíkana sem og Mexíkóameríkana sem búsettir eru norðan markanna. Þeir koma úr öllum stéttum samfélagsins og þess vegna má, auk togstreitunnar „norður og suður“, einnig merkja innri togstreitu milli hinna ýmsu stétta bæði meðal Mexíkana sem og Mexíkó ameríkana. Þar við bætist togstreitan á milli hópanna tveggja auk togstreitunnar við bandarískt samfélag. Þannig má sjá að það er mikil fjarlægð t.d. á milli Mexíkó ameríkana sem eru afkomendur efnaðra Mexíkana sem flýðu til Banda ríkjanna í mexíkönsku byltingunni í byrjun 20. aldar, og nýkominna mexíkanskra verkamanna sem oftast koma úr lægri stéttum samfélagsins og eru mestísar eða indíánar. Þarna koma fyrir splundraðar fjölskyldur sem búa beggja vegna markanna. Allt getur þetta fólk í raun rakið stöðu sína í nútímanum til landamæranna og tilkomu þeirra. Víst er að rithöfundar landamæranna hafa tekist á við mörkin út frá ýmsum sjónarhornum. Gabriel Trujillo Muñoz gerir það í gegnum glæpa- söguna El festín de los cuervos (Átveisla hrafnanna, 2002). Hann umvendir sjónarhorni „miðstýringarinnar“ og horfir á mörkin með augum spæjarans 39 Rosario Sanmiguel, Callejón Sucre y otros relatos, Chihuahua: Ediciones del Azar, 1994, bls. 26.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132
Síða 133
Síða 134
Síða 135
Síða 136
Síða 137
Síða 138
Síða 139
Síða 140
Síða 141
Síða 142
Síða 143
Síða 144
Síða 145
Síða 146
Síða 147
Síða 148
Síða 149
Síða 150
Síða 151
Síða 152
Síða 153
Síða 154
Síða 155
Síða 156
Síða 157
Síða 158
Síða 159
Síða 160
Síða 161
Síða 162
Síða 163
Síða 164
Síða 165
Síða 166
Síða 167
Síða 168
Síða 169
Síða 170
Síða 171
Síða 172
Síða 173
Síða 174
Síða 175
Síða 176
Síða 177
Síða 178
Síða 179
Síða 180
Síða 181
Síða 182
Síða 183
Síða 184
Síða 185
Síða 186
Síða 187
Síða 188
Síða 189
Síða 190
Síða 191
Síða 192
Síða 193
Síða 194
Síða 195
Síða 196
Síða 197
Síða 198
Síða 199
Síða 200
Síða 201

x

Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar
https://timarit.is/publication/1098

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.