Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar - 01.01.2009, Page 104
104
STEfÁn ÁSGEIR GuðmundSSon
lýðsfélaga og ákveðinna þrýstihópa á sveif með andstæðingum Chávez og
skipulögðu verkfall sem rúmlega hálf milljón manna tók þátt í. Á götum
Caracas laust mannfjöldanum saman við stuðningsmenn Chávez með
þeim afleiðingum að 50 manns létu lífið. Til að koma í veg fyrir að ofbeld-
ið spyrðist út reyndi Chávez að þagga niður í fjölmiðlum. Á sama tíma
ákvað hópur innan hersins að grípa í taumana og stemma stigu við óeirð-
unum í borginni sem lauk með því að hópurinn lýsti því yfir að Chávez
hefði sagt af sér. Í kjölfarið var einn af forsprökkum verkfallsins tilnefndur
sem bráðabirgðaforseti landsins. Í raun og veru var þetta þekkt stjórnar-
byltingarform, á borð við það sem Augusto Pinochet leiddi í Chile árið
1973. Stærsti munurinn verður þó að teljast sá að bylting Pinochets
heppnaðist en andstæðingar Chávez höfðu varla fengið tóm til að fagna
sigri þegar herdeildir hliðhollar forsetanum stigu inn á sjónarsviðið og
uppreisnaröflin liðuðust í sundur.21 Stjórnarandstæðingar máttu þarna
horfa á eftir vænlegasta tækifærinu sem þeir höfðu fengið fram að þessu til
að koma Chávez frá völdum.
Allt frá því að Hugo Chávez tók við völdum í Venesúela hefur hann lagt
mikla áherslu á að auka fjölbreytni atvinnulífsins í landinu. Í Venes úela er
ein stærsta olíulind heimsins og er landið eitt af stofnfélögum OPEC,
samtaka olíuríkja. Olíuvinnsla er ein helsta atvinnugreinin í landinu.
Langstærstur hluti útflutningstekna landsins kemur úr olíuútflutningi og
hversu undarlega sem það kann að hljóma eru það Bandaríkin sem kaupa
stóran hluta olíunnar. Chávez gerir sér fulla grein fyrir mikilvægi olíuiðn-
aðarins en vill engu að síður virkja nýjar og gamlar atvinnugreinar sem
hann telur fyrri stjórnvöld hafa hunsað.
Venesúela hefur líkt og margar aðrar þjóðir ekki farið varhluta af
byggða röskun og telur Chávez þessa þróun vera alvarlegt vandamál sem
þurfi að glíma við.22 Stöðugir fólksflutningar af landsbyggðinni til borga
landsins hafa átt sér stað síðustu áratugi og er nú svo komið að um 90%
íbúa landsins búa í þéttbýli.23 Þar er oftar en ekki litla eða enga atvinnu að
hafa og fátækir bændur sem flutt hafa í þéttbýlið í leit að betra lífi enda því
oft í fátækrahverfum í útjaðri borganna. Slíkum flutningum fylgja ýmis
félags- og umhverfisvandamál eins og gefur að skilja. Von Chávez er sú að
með því að efla gamla atvinnuvegi líkt og landbúnað megi hægja á þessari
21 Þessi atburðarás er rakin víða, m.a. í Benjamin Keen og Keith Haynes, A History of
Latin America, bls. 506.
22 Richard Gott, In the Shadow of the Liberator, bls. 10–13.
23 H. Micheal Tarver og Julia C. Frederick, The History of Venezuela, bls. 156.