Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar - 01.01.2009, Side 158
annETTE laSSEn
158
heilagra manna, þar sem sjálfsfórn bæði kvenna og karla hafa samskonar
afleiðingar. En Andersen – og Trier löngu síðar – bætir við einu atriði sem
ekki á uppruna í helgisögum, en það er hin jarðneska ást, og einmitt af
henni sprettur tragedían í þessum sögum – tragedía sem segja má að
spretti af samruna tveggja sagnaflokka, ævintýrisins og píslarsögunnar.
Í Breaking the Waves ákveða kirkjunnar menn að útskúfa Bess. Í „Villtu
svönunum“ heldur erkibiskupinn með svipuðum hætti að þögla stúlkan sé
norn (bls. 146, 147). Þegar biskupinn segir konunginum frá þessu hrista
helgimyndir kirkjunnar allar höfuðið en biskupinn misskilur þetta og
heldur að þær séu að samsinna honum. Þegar konungurinn sér Elísu fara
út í kirkjugarðinn um nóttina kýs hann að taka orð biskupsins trúanleg og
ákveðið er að brenna Elísu á báli sem norn. Hún má ekki mæla og segir
ekkert um sakleysi sitt. Á leiðinni á bálið prjónar Elísa síðustu peysuna en
þegar lýðurinn ætlar að ráðast á hana vernda svanabræðurnir hana og hún
getur kastað peysunum til þeirra svo þeir verða aftur að prinsum. Þá loks-
ins getur hún talað og segist vera saklaus. Fólkið beygir sig fyrir henni eins
og fyrir „heilagri meyju“ („Folket [...] bøjede sig for hende som for en
Helgeninde“, bls. 150) og hún fellur andvana í fang bræðranna. Tréð á bál-
inu skýtur rótum og fram vaxa rauð blóm og eitt hvítt. Konungurinn setur
hvíta blómið á brjóst Elísu, sem vaknar aftur til lífsins með „frið og ham-
ingju í hjartanu“ („med Fred og Lyksalighed i sit Hjerte“, bls. 150). Og
kirkjuklukkur hringdu allar af sjálfu sér, segir þar („Og alle Kirkeklokker
ringede af sig selv“, bls. 150). Þessi endir minnir auðvitað á bjöllurnar á
himni í lokasenu Breaking the Waves. En öfugt við Bess og litlu hafmeyjuna
fær Elísa að halda lífinu. Hún deyr í fyrstu, en það sem gefur henni lífið
aftur er hvíta blómið, sem er einskonar Krists-tákn. Þegar hún vaknar
hefur hún loksins öðlast frið í hjarta sínu enda hefur hún bjargað bræðr-
unum. Í þessum tveimur ævintýrum eftir H.C. Andersen erum við stödd í
sama hugmyndaheimi og í Breaking the Waves.
Heilagar meyjar Guðs: Bess, hafmeyjan og Elísa
Á svipaðan hátt og „Villtu svanirnir“ og „Litla hafmeyjan“ er kvikmynd
Lars von Trier, Breaking the Waves, blendingur ævintýra um konur sem
fórna sér og helgisagna um heilagar meyjar. Konurnar eiga að lítillækka sig
og fórna því dýrmætasta sem þær eiga. Píslarganga Bess felst um leið í
kynlífsþjáningu, og hér koma inn í ævintýra- og helgisagnasamhengið
áhrif frá verkum Marquis de Sade, enda hafa nokkrir fræðimenn haldið því