Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar - 01.01.2009, Page 192

Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar - 01.01.2009, Page 192
RóbERT H. HaRaldSSon 192 Í öðru lagi mætti færa rök fyrir því að fleira en beinn skaði, unninn öðrum einstaklingum, komi til álita við takmörkun prentfrelsis. Í því sam- hengi kemur ef til vill fyrst upp í hugann bann við algerlega siðlausum skoðunum og mjög særandi eða móðgandi skoðunum.26 Ljóst er að síðar- nefnda ástæðan gæti hugsanlega hafa gagnast þeim sem vildu banna dönsku teikningarnar. Við upphaf annars kafla Frelsisins lýsir Mill hins vegar þeirri skoðun sinni að menn eigi „að hafa fullt frelsi til að játa og ræða hvaða siðferðilega sannfæringu sem vera skal, hversu siðlaus sem hún annars er talin“27 („however immoral it may be considered“28). Og hann gagnrýnir líka ákaft þá tilhneigingu að orðið „ærumeiðing“ sé látið ná til alls þess sem særir tilfinningar manna („hurts the feelings of any body“29). Virðing fyrir tilfinningum fólks er, að dómi Mills, oft ekki annað en virð- ing fyrir kreddum og hreinræktuðum hindurvitnum.30 Þá má benda á að frá unga aldri lagði Mill þeim lið sem dæmdir höfðu verið til fangelsis- vistar vegna guðlasts og skrifaði meðal annars blaðagreinar þeim til varn- ar.31 Í Frelsinu nefnir hann í varúðarskyni dæmi af manni sem nýlega hafði Stuart Mill, Collected Works of John Stuart Mill, 21. bindi, bls. 3−34. Sjá einnig „Place’s on the Law of Libel“ frá árinu 1824. John Stuart Mill, Collected Works of John Stuart Mill, 22. bindi, ritstj. Ann P. Robson og J.M. Robson, Toronto: Uni- versity of Toronto Press, 1986, bls. 91−94. 26 Sumir heimspekingar samtímans hafa viljað fara þá leið að takmarka frelsi sé um að ræða grófa móðgun (e. offence) sem uppfyllir ströng skilyrði. Sjá umræðu um þetta í grein Terry L. Price, „Feinberg’s Offense Principle and the Danish Cart- oons of Muhammad“, APA Newsletters 1/6 2006 (haust), bls. 6−12. Ítarlegasta umræða Feinbergs um efnið er í The Moral Limits of the Criminal Law, 4 bindi, New York: Oxford University Press, 1984–1988. Sjá einnig bók hans Social Philosophy, Englewood Cliffs: Prentice-Hall Inc, 1973, þriðja kafla. Feinberg lýsir markmiðum sínum m.a. með samanburði við yfirlýstan tilgang Frelsisins, sjá The Moral Limits of the Criminal Law, 1. bindi, bls. 3–12. Í þessari grein geri ég hvorki tilraun til að lýsa ítarlega eða hafna kenningum Feinbergs um efnið. 27 John Stuart Mill, Frelsið, bls. 206, nmgr. 9. 28 John Stuart Mill, Collected Works of John Stuart Mill, 18. bindi, bls. 228. Hann segist raunar hafa megna óbeit á orðunum „siðalaus“ eða „guðlaus“ skoðun. John Stuart Mill, Frelsið, bls. 73. 29 John Stuart Mill, Collected Works of John Stuart Mill, 21. bindi, bls. 22, leturbreyting þar. 30 Eitt dæmi Mills er raunar af þeim mikla viðbjóði sem múhameðstrúarmenn hafa á neyslu svínakjöts. Hann beitir frelsisreglunni til að sýna að jafnvel þótt slíkur viðbjóður byggðist m.a. á þeirri einlægu trú þeirra að guð hafi forboðið svínakjötsát hefðu múhameðstrúarmenn engan rétt á að banna öðrum að neyta slíkrar fæðu væru þeir í aðstöðu til þess. John Stuart Mill, Frelsið, bls. 155−156. 31 Sjá t.d. þrjár athyglisverðar blaðagreinar hans til varnar málfrelsi frá árinu 1823. John Stuart Mill, Collected Works of John Stuart Mill, 22. bindi, bls. 9−18. Sjá einnig
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172
Page 173
Page 174
Page 175
Page 176
Page 177
Page 178
Page 179
Page 180
Page 181
Page 182
Page 183
Page 184
Page 185
Page 186
Page 187
Page 188
Page 189
Page 190
Page 191
Page 192
Page 193
Page 194
Page 195
Page 196
Page 197
Page 198
Page 199
Page 200
Page 201

x

Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar
https://timarit.is/publication/1098

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.