Skagfirðingabók - 01.01.1982, Blaðsíða 19
SÝSLULÝSING YFIR SKAGAFJARÐARSÝSLU
Deildardal, og Óslandshlíð; ennfremur Málmey og Drangey. Að
vestan liggur hann að sjó, að norðan er Fellshreppur, austan
Vallahreppur í Eyjafjarðarsýslu, að sunnan Hólahreppur. Þar er
þingað á kirkjustaðnum Hofi á Höfðaströnd.
4. Hólahreppur er kenndur við hið forna biskupsetur Hóla í
Hjaltadal. Undir þann hrepp lýtur Hjaltadalur og Kolbeinsdal-
ur. Að norðan liggur Hofshreppur, að austan Vallahreppur, að
sunnan Arnarneshreppur í Eyjafjarðarsýslu, að vestan Viðvíkur-
hreppur og Akrahreppur. Hreppsbúar sækja þing að Viðvík í
Viðvíkursveit.
5. Viðvíkurhreppur, áður Viðvíkursveit, nær að norðan til
sjávar, að austan er Hólahreppur, að sunnan Akrahreppur, að
vestan Rípurhreppur. Viðvíkurhreppur og Hólahreppur mynda
eina þingsókn, og er prestsetrið Viðvík þingstaður þeirra beggja.
6. Akrahreppur. Undir þann hrepp lýtur Blönduhlíð öll ásamt
Norðurárdal, Kjálki og Austurdalur, ennfremur þrír bæir í
Vallliólmi: Stokkhólmi, Mikley og nýbýlið Hringey. Að norðan
liggur Viðvíkurhreppur, að austan Hólahreppur, að sunnan
óbyggðir, að vestan Lýtingsstaðahreppur, Seyluhreppur og Ríp-
urhreppur. Þingstaður hreppsins er Stóru-Akrar í Blönduhlíð.
7. Lýtingsstaðahreppur. Það er Vesturdalur, Svartárdalur og
Tungusveit; nær að sunnan fram að óbyggðum, að austan liggur
Akrahreppur, að norðan Seyluhreppur, að vestan Bólstaðarhlíð-
arhreppur í Húnavatnssýslu. Þing er átt að Lýtingsstöðum i
Tungusveit.
8. Seyluhreppur. Þar til heyrir Vallhólmur og Langholt fram-
anvert. Að sunnan er Lýtingsstaðahreppur, að austan Akra-
hreppur, að norðan Staðarhreppur, að vestan Bólstaðarhlíðar-
hreppur. Seyluhreppur og Staðarhreppur eru ein þingsókn, og er
Stóra-Seyla á Langholti þingstaður beggja hreppanna.
9. Staðarhreppur er kenndur við Reynistað, eður Stað í
Reyninesi. Það er kirkjustaður, og nunnuklaustur var þar til
forna. Undir hreppinn lýtur Sæmundarhlíð og Langholt utan-
vert, svo og Staðarfjöll. Að sunnan liggur Seyluhreppur, að
17
2