Skagfirðingabók - 01.01.1982, Blaðsíða 169
AIN SEM HVARF
ann á Hólum og hefði hann bent sér á Ólaf Jónsson ráðunaut
sem góðan mann til starfsins. Ymsir bæjarfulltrúar tóku til
máls og að lokum var samþykkt tillaga þess efnis að fá Ólaf
Jónsson til að hallamæla og kortleggja landið og það sem fyrst,
svo hægt væri að hefja framkvæmdir á svæðinu, sem brýn
nauðsyn ber til að koma sem fyrst til framkvæmda“. Þann 14.
september 1948 segir fundargerðabók: „Þá skýrði hann (þ.e.
G.S.) frá því, að hann hefði fengið Vigfús kennara á Hólum til
að mæla fyrir farvegi Sauðárinnar, leikvelli o.fl. og væri þeim
mælingum að verða lokið“. Tæpu ári síðar, eða þann 9. ágúst
1949, er svo bókað: „Þá gat forseti þess, að búist hefði verið
við því, að Sauðáin yrði tekin á þessu sumri úr sínum gamla
farvegi og veitt suður og ofan inn á mýrarnar. En nú hefði
vegamálaskrifstofan upplýst það, að ekki mundi verða af þeim
framkvæmdum í ár, sem hann haldi mjög óheppilegt, því bráða
nauðsyn bæri til þess að fara að hefja aðgerðir að koma upp
nújum íþróttavelli á Sauðáreyrum, er hinn gamli völlur úti á
Eyrinni yrði að líkindum ónothæfur vegna nýbygginga sem nú
eru að hefjast þar. Ýmsir bæjarfulltrúar tóku til máls og studdu
það eindregið að hafist væri handa með þessar framkvæmdir
og bærinn legði fram fé í bili til að veita ánni. En vegamála-
stjóri hafði áður lofað að kosta þessa framkvæmd að hálfu
leyti. Að lokum kom fram svohljóðandi tillaga: Bæjarstjórn
felur bæjarstjóra að leita samninga við vegamálastjóra um
færslu Sauðárfarvegs nú þegar, t.d. á þann hátt að bærinn
útvegi að láni hluta ríkisins af kostnaði þessum til endur-
greiðslu með ákveðnum afborgunum. Tillagan var því næst
borin upp og samþykkt í einu hljóði“.
Málið er sem sé orðið allerfitt viðureignar og hæstu yfirvöld
komin með fingurna í aftöku Sauðár gömlu. Og ekki vænkast
hagur færslumanna, þegar á haustið líður, því að 4. október
1949 stendur þetta: „Ennfremur hitti hann (bæjarstjóri) vega-
málastjóra viðvíkjandi færslu Sauðárinnar austur mýrarnar
gegnum Skagfirðingabraut. En nú hafði áætlunin hækkað upp í
167