Skagfirðingabók - 01.01.1982, Blaðsíða 173
ANNALL UR SKAGAFIRÐI
mikið af heyjum. En þann 14. sama mánaðar kom fádæma
sunnanstormur, svo elztu menn mundu ekki þvílik bvsn. Fauk
þá bókstaflega allt hey, sem laust var, og auk þess hvert sæti, sem
ei var því rammlegar umbúið. Hefir sá skaði numið mörg þús-
und heyhestum yfir alla sýsluna. T. d. kom það í ljós hér við
athugun í Blönduhlíðinni, að þar mun tjónið hafa numið þrem
þúsund hestum. Og svona var það næstum yfir gjörvallt landið.
Fyrir göngurnar gerði svo úrhellisrigningu, og stórskemmdist þá
það hey, sem þá var úti, og ekki hafði unnizt tími til að ná í
tóftir. Kom þá svo mikið flóð í Héraðsvötnin, sem mest á vori.
Skömmu fyrir veturnætur gerði aðra stórrigninguna. Urðu þá
líka allar ár vitlausar og stórskemmdu brautir og brýr í héraðinu,
t. d. Djúpadalsá. Kostaði það stórfé og mikinn tima að koma
þessu í lag aftur. Það sem af er vetrinum hefir reynzt nokkuð
umhleypingasamt, en að öðru leyti er tíð sæmileg og lítill snjór.
A jólum var víðast lítið búið að gefa fé og sums staðar ekkert. Er
það mikill munur eða í fyrra, enda sögðu þeir gömlu, að ef miklir
heyskaðar yrðu að sumrinu, mundi vanalega góður vetur fylgja á
eftir. Hefir það rætzt það sem af er þessum vetri.
Slátrað mun hafa verið álíka mörgu fé í haust, sem í fyrra. A
Sauðárkróki var slátrað 20.941 kind, og var meðalvigt dilkanna
13.60 kg, eða rúmlega 27 pd. Má það heita ágætt, því í vor var
með meira móti tvílembt. I Hofsós var slátrað 1.699 dilkum.
meðalvigt 12.76 kg; í Kolkuósi 216 dilkum, meðalvigt 11.82 kg.
Talið er betra útlit með kjöt og gærur en í fyrrahaust. Hefir það
bætt stórlega, að í haust leyfðu Englendingar innflutning á
heilum skipsfarmi af frosnu kjöti umfram það, sem verið hefir.
Þetta ár hefir mjólkursamlagið starfað og hefir nú tekið á
móti 340 þúsund lítrum (pottum) mjólkur, og er það töluvert
hærra en í fyrra. Er það vonandi, að það nái 1/2 milljón lítra á
næsta ári, því enn eru engir farnir að snúa sér að því með alvöru,
því fé og hrossum hefir alls ekki fækkað neitt. Verð mjólkur-
innar er heldur lágt, en vonandi á það eftir að hækka, þegar hún
vex í samlaginu, því þá verður hlutfallslega ódýrari rekstur.
171