Skagfirðingabók - 01.01.1982, Blaðsíða 34
SKAGFIRÐINGABÓK
Vegurinn vestan Vatna hefur að undanförnu orðið útundan,
enda er þar landslagi svo háttað, að óvíða eru foræði yfir að fara.
Þó er þar eitt mýrarsund yzt á Langholti, fyrir neðan Holtsmúla,
er bráðlega þyrfti að bæta með brúargjörð.
Að öðru leyti liggur næst að ryðja veginn, þar sem hann er
þurr og grýttur, auk þess sem árlega gengur til viðurhalds brúm
þeim, er gjörðar hafa verið.
Þótt vegalögin gjöri ráð fyrir, að ár á þjóðvegum séu brúaðar,
hefur því sökum fjárskorts hingað til eigi orðið komið við, en nú
er það orðið að samkomulagi, að byrjað verði að brúa hinar
hættulegustu ár í sýslunni, þannig að helmingur kostnaðarins sé
tekinn af vegagjaldinu, en hinn helmingurinn fáist með frjálsum
samskotum sýslubúa. Til þessa fyrirtækis eru ætlaðar af þjóð-
vegagjaldinu 1000 krónur, er verða greiddar á næstu árum, smátt
og smátt, eftir því sem verkinu miðar áfram.
Á næstliðnu vori var sett brú á Gönguskarðsá, fyrir innan
Reykjaströnd. Liggur nú næst fyrir að brúa Valagilsá í Norð-
urárdal. Ef það hefur góðan framgang verður litið á, hvort
tiltækilegt sé að setja brú á Kolku fyrir neðan ármót, eður að
öðrum kosti á Hjaltadalsá og Kolbeinsdalsá, áður en þær renna
saman. Eftir lauslegri áætlun hefur verið gjört ráð fyrir, að brýr
þessar mundu kosta 2000 krónur, en hætt er við, að varla veiti af
tvöfaldri upphæð, eður 4000 krónum, til þess að þær verði
traustar og i gildu standi.
SJÖUNDI ÞÁTTUR.
Hvernig er búningur alþýðu (karla og kvenna) ísýslunni? Breytist
hann, og á hvem hátt? Að hverju leyti er hann fremur, að hverju leyti
síður en í öðrum he'ruðum landsins, sem þér þekkið til?
1. grein.
Hinn almennasti hversdagsbúningur kvenna er hinn svo-
32