Skagfirðingabók - 01.01.1982, Blaðsíða 196
SKAGFIRÐINGABÓK
ágætlega. Tómas var fæddur 17. október 1869 og vantaði því eitt
ár í sjötugt, er hann lézt.
Á síðastliðnu vori dó einnig sr. Arnór Árnason, fyrrum
prestur í Hvammi í Laxárdal. Hann var fæddur 16. febrúar 1860
og var því 78 ára, er hann lézt. Hann var hinn vitrasti maður og
frjálslyndur alla sína tíð, víðsýnn og ötull að hverju sem hann
gekk. Átti hann þátt í mörgum framfaramálum hér innan hér-
aðsins og fylgdi þeim ótrauður fram, unz hann náði takmarkinu.
Hann var formaður Kaupfélags Skagfirðinga, er það átti erfiðast
og lengst af formaður Sláturfélags Skagfirðinga.
í haust andaðist í Sólheimum í Blönduhlíð Guðfmna Jens-
dóttir, prófastsfrú frá Miklabæ, eftir langa vanheilsu. Hún var
ekkja sr. Björns Jónssonar, fyrrum prófasts á Miklabæ, og hin
mesta ágætiskona. Var heimili þeirra hjóna um langt skeið eitt af
þeim stærstu hér í sveit og gestrisni og rausn viðbrugðið. Kirkja
var jafnan vel sótt að Miklabæ, og hversu mikið fjölmenni, sem
að garði bar við slíkt tækifæri, fór aldrei neinn svo þaðan, að
hann hefði ekki áður fengið góðgerðir. Menn voru heldur ekki
neitt að flýta sér þaðan, þvi oft var það venja að messu lokinni, að
sóknarmenn áttu þá umræðufund um ýmis þau mál, sem þá
voru efst á baugi hjá þjóðinni eða þurfti að koma í framkvæmd
innan sveitar, enda áttu þau oft og einatt rót sína að rekja
þangað. Þau hjón áttu fjölda barna; meðal þeirra eru prófastur
héraðsins, sr. Guðbrandur Björnsson i Hofsós, og sr. Bergur
Björnsson, prestur í Stafholti í Borgarfirði.
Um sömu mundir dó einnig Jón Árnason, bóndi í Valadal.
Hann var sonur Árna Jónssonar bónda á Stóru-Ökrum. Jón
byrjaði búskap á Ökrum, keypti síðan Ytra-Skörðugil og bjó þar
um skeið, seldi síðan þá jörð og keypti Valadal og bjó þar til
dauðadags. Þótt hann hefði mikla ómegð, farnaðist honum
prýðilega i öllum sínum búskap og varð að lokum fjáður maður.
Kona hans eftirlifandi er Dýrborg Daníelsdóttir frá Mikley. Þrír
synir þeirra búa nú á jörðinni, orðlagðir dugnaðarmenn.
Þá dó hér einnig síðastliðið sumar Pétur Sighvatsson stöðv-
194