Skagfirðingabók - 01.01.1982, Blaðsíða 116
SKAGFIRÐINGABÓK
10. júní 1855 (rétt ’53) valkvendinu Guðlaugu Eiríksdóttur
Sverrissonar sýslumanns, er nú lifir hann ekkja ásamt 7 börnum,
er þeim varð auðið, er grafletrið skýrir frá og hinu 8, er nú
fæddist 17. daginn eftir lát föðurins og var skírt yfir moldum
hans áður en líkið væri út hafið og heitinn eftir honum: Gísli.“
Síðustu tvö erindin í grafletri sr. Olafs Pálssonar eru á þessa
leið:
Æ, ljúfi bróðir, legstað þinn
vér laugum nú með sorgartárum.
Það huggar samt, að himininn
þú hefur gist í fögnuð klárum.
Og fyllir englaflokkinn þar,
sem föður ljósanna vegsamar.
Og hann, sem þú um æviár
ætíð trúlyndur gjörðir minna
hann þerri gjörvöll harmatár
og hjörtum ástvina svali þinna.
Hann vefji föðurfaðmi sin
hin föðurlausu börnin þín.
Helztu heimildir:
Kirkjubœkur Hofstaðajiinga, Hraungerðis, Breiðabólstaðar í Fljótshlíð, Reytiivalla
°g Bœgisár, Skó/askýrslur frá Bessastöðum, latínuskólanum og Prestaskólanum,
Bréf til Brynjólfs Péturssonar, Ævisögur presta (Vita) ípyð. Jóns Sveinbjömssonar
próf, Jarða og búendatal í Skagafjarðarsýslu, Saga frá Skagftrðingum /—//, Bréf
Páls Melsteðs, Konur skrifa bréf, Biskupinn í Görðum, Árbcekur Reykjavíkur,
Fjölnir, Annáll 19. aldar, Ljóðmœli Gísla Tborarensens og Bólu-Hjá/mars,
Þjóðólfur, Jón Sigurðsson e. P.E.Ó. I, 6., Séð og lifað, Þjóðbættir og cevisögur.
Um böm og aðra afkomendur sr. Gísla Jóhannessonar sjá: Niðjatal e. Óskar
Einarsson, Rvk 1953.
114