Skagfirðingabók - 01.01.1982, Blaðsíða 187
ANNÁLL ÚR SKAGAFIRÐI
Hann var fyrsti þingmaður Skagfirðinga árið 1918, og ávallt
síðan, fram að kosningunum síðastliðið vor, eða samtals 21 ár. í
sumar varð hann landskjörinn þingmaður Sjálfstæðisflokksins,
og var þetta þing hið 26. í röðinni, er hann sat. Jarðarför hans fór
fram á ríkisins kostnað. — Magnús Guðmundsson var eitt hið
vinsælasta yfirvald, sem hér hefir setið, og framúrskarandi
dugnaðar- og reglumaður. Líkaði Skagfirðingum vel við hann,
eins og sjá má á því að kjósa hann einatt á þing, enda tók hann til
þeirrar tryggðar í sinn garð og þótti vænt um Skagfirðinga.
Beztu og skemmtilegustu ár ævi sinnar kvað hann þau, er hann
var hér sýslumaður. Þessa ágæta manns hefir verið svo rækilega
minnzt í blöðum landsins, að ég sé ekki ástæðu til að rita meir
um hann hér, en þó mun fara fyrir mörgum Skagfirðingi þannig,
að er hann heyrir góðs manns getið, mun honum koma Magnús
Guðmundsson í hug. Hann var fæddur 1879, og var því 58 ára
gamall.
Eftir áramótin andaðist Jón Guðmundsson frá Brennigerði,
fyrrum hreppstjóri á Sauðárkrók. Hann var hinn mesti atorku-
og dugnaðarmaður, réri t. d. suður 20 vertíðar og gekk suður og
að sunnan, sem þá var vermanna siður í Skagafirði. Hann mun
hafa byggt fyrsta húsið á Sauðárkróki. Var það sjóbúð, og stund-
aði hann þaðan útræði, er hann bjó í Brennigerði. Löngu seinna,
er Krókurinn fór að byggjast, fluttist hann þangað, og er Sauð-
árkrókur varð sérstakur hreppur, var hann skipaður hreppstjóri
og varð þannig fyrsti hreppstjóri Sauðárkróks. Jóni voru falin
ýmis trúnaðarstörf af sveitungum sínum, og rækti hann þau öll
með framúrskarandi ósérhlífni og samvizkusemi. Þótti hann að
öllu hinn merkasti maður. Kona hans, Guðný Eggertsdóttir, var
dáin fyrir nokkrum árum. Jón var fæddur 7. ágúst 1843 og varð
því 95 ára. Hann var blindur hin síðustu ár ævi sinnar.
A síðastliðnu vori andaðist einnig Gísli Björnsson oddviti á
Vöglum í Blönduhlíð. Móðir hans var Sigríður Þorláksdóttir,
systir Gísla hreppstjóra Þorlákssonar á Frostastöðum. Gísli óst
upp hjá föðurbróður sínum, er hann bjó hér á Hjaltastöðum.
185