Skagfirðingabók - 01.01.1982, Blaðsíða 133
SÍÐASTI FÖRUMAÐUR í SKAGAFIRÐI
að hann hafi verið 11 ára, er foreldrar hans fluttust úr Fljótum,
og hafi hann þá farið að vinna fyrir sér, heldur hefur hann verið
22 ára, eða orðið það á því ári. Hartmann hefur líklega haft þetta
eftir Sveini sjálfum, en hann var lítt áreiðanlegur um ýmsar
heimildir. Lagaði hann fréttirnar eftir því, sem þótti bezt við
hæfi hverju sinni. Eg heyrði hann t. d. segja, að hann hefði verið
12 ára drengur á Okrum, er sr. Jón Norðmann drukknaði, en það
var 1877, og hefir því Sveinn orðið tvítugur að aldri það ár.
Annars vildi hann aldrei tala um aldur sinn, og var honum varla
verr gert en spyrja hann, hve gamall hann væri, og svaraði þvi
aldrei með öðru en útúrsnúningum. Er mér nær að halda, að
hann hafi ekki verið viss um aldur sinn, a. m. k. er á leið ævina,
þá venjulega talið sig yngri en hann var. Og þó að árunum
fjölgaði, vildi hann jafnan telja sig til yngri kynslóðarinnar.
Sagði hann oft eitthvað á þessa leið: „Þessir gömlu menn vilja
hafa það svona og svona, en ungdómurinn vill nú hafa það öðru
vísi.“
Það virðist hafa verið siður, eða skylda, að prestar gæfu eink-
unnir um lestrarkunnáttu fólks í sóknum sínum, þó að um
fullorðið fólk væri að ræða. Þetta mun hafa haldizt a. m. k. fram
um 1880.
Eftir fermingu fær Sveinn þann vitnisburð, þá 18 ára: „Stautar
allsæmilega." Sama vitnisburð fær hann 19 ára, en 20 ára er
vitnisburðurinn þessi: „Les laklega.“ Arið eftir, 1878, er hann er
21 árs, fær hann loks þennan vitnisburð: „Les vel.“ En þá er líka
annar prestur kominn, sem e. t. v. hefur ekki gert eins strangar
kröfur til lestrarkunnáttu og sr. Jón Norðmann. Tvö síðustu
árin, sem vitnisburður finnst um lestur hans, er hann bæði árin:
„Les sæmilega.“
Sumir töldu, að Sveinn hafi ekki verið læs, en það er ekki rétt.
Hann hefir sennilega ekki verið hraðlæs, en ég sá hann oft lesa
bæði í blöðum og bókum, einkum Islendingasögum, en einnig
fleiri sögum. Las hann alltaf hálfupphátt. Það hefi ég reyndar
heyrt fleira gamalt fólk gera. En ég hugsa, að hann hafi ekki verið
131
í.