Skagfirðingabók - 01.01.1982, Blaðsíða 84
SKAGFIRÐINGABÓK
Bægisá. Þau önduðust bæði árið 1863. Bólu-Hjálmar orti löng
eftirmæli eftir Ingu, í orðastað systur hennar. í tveimur erindum
er þess sérstaklega minnzt, þegar hún, ung að árum, settist í
húsfreyjusætið í Hofstaðaseli:
Heiðarlegt inngekkst hjónaband,
hús ekkjumannsins tókst að þér,
Hofstaðasel og stjórnarstand,
stóran vanda, sem bar í sér.
Hamingjan var þér fylgifús,
faðmi vefjandi gullnum sín.
Blómstraði göfugt bóndahús,
blessan og heill við komu þín.
Bylta af hestbaki
Þess er getið í Sögu frá Skagfirðingum, að árið 1837, þegar
Jóhannes í Hofstaðaseli var á heimleið frá yfirskoðun á Reyni-
stað, féll hann af hestbaki og viðbeinsbrotnaði. Fjórtán árum
síðar varð annað fall af hestbaki Jóhannesi að aldurtila. Hann
andaðist 16. jan. 1851, og fór útför hans fram 29. jan. Þá var
Jóhannes rúmlega sextugur og hafði verið hreppstjóri í 31 ár.
Næsta vetur, þann 6. des., var dánarbúið skrifað upp af hlut-
aðeigandi hreppstjórum og virt á 1953 rd. 76 sk. Sýnir það, að
Jóhannes hefur verið vel efnaður með blómlegt bú, þótt ekki
gæti hann kallazt auðmaður, eins og tekið er fram í ritgerð
Kolbeins á Skriðulandi um sr. Benedikt Vigfússon og áður er
getið.
Sýslumaður, Lárus Thorarensen, tók búið til skipta 31. marz
1852. Þar segir, að sýslumaður hafi skrifað Gísla Jóhannessyni og
tilkynnt honum skiptafundinn „hverju hann í bréfi til skipta-
réttarins af 10. þ. m. hefir svarað á þá leið, að hvorki hann sjálfur
82