Skagfirðingabók - 01.01.1982, Blaðsíða 88
SKAGFIRÐINGABÓK
sem hann var í Hjálmholti að þessu sinni. Hjá honum lærði
Stefán Thorarensen frá Hraungerði undir skóla, og eflaust hefur
hann kennt þeim Melsteðssonum, Jóni og Halldóri, sem þá voru
ungir heima i föðurgarði.
Fall eða frami
Eftir tveggja ára dvöl í Hjálmholti sigldi Gísli Jóhannesson til
Kaupmannahafnar og innritaðist í háskólann á 25 ára afmælis-
degi sínum, 19. okt. 1842. Haustið eftir — 1843 — tók hann
fyrsta lærdómspróf. Um þetta próf Gísla skrifar Jón Jónsson
lektor í skýrslu Bessastaðaskóla 1842—43 á þessa leið:
„Tveir af þeim, sem í Majó 1842 útskrifuðust frá Bessastaða-
skóla, Brynjólfur Snorrason og Halldór Friðriksson, lögðu sig í
haust eð var undir fyrsta Háskólans lærdómspróf (Examen
Artíum) og fengu báðir Laudabílis. Þar að auki lagði sig Gísli
Jóhannesson, útskrifaður úr nefndum skóla í majó 1840, líka
undir Háskólans fyrsta lærdómspróf og fékk Haudabílis og þykir
mér ekki ólíklegt að þessi líka hefði fengið Laud, ef hann hefði
siglt sama ár sem hann útskrifaðist".
Um nám eða próf Gísla við háskólann að öðru leyti eru
heimildir óljósar, enda segir hann sjálfur í ævisögu sinni, að
hann hafi snúið aftur heim, „þótt ekki væri formlega frá því
gengið, að ég hefði lokið prófi í málfræði“. En hvernig sem þessu
hefur verið varið, er hitt víst, að námsframi Gísla varð harla lítill
og a. m. k. langtum minni en efni stóðu til og gáfur hans gáfu
vonir um. Og ástæðan var óregla, eins og hjá mörgum Hafnar-
stúdent fyrr og síðar. Það rættist á honum, sem sýslungi hans,
Konráð Gíslason, skrifaði frænda sínum, Indriða Einarssyni, að
til Hafnar hefðu íslendingar fleiri sótt fall en frama (Séð og
lifað).
86