Skagfirðingabók - 01.01.1982, Blaðsíða 50
SKAGFIRÐINGABÓK
en upphæð þess í peningum er reiknuð eftir meðalalin í verð-
lagsskránni. Fullir ómagar eru talin börn, allt þar til þau eru 10
ára eða eldri, einkum ef þau annaðhvort eru tornæm eður mjög
heilsulítil, þá er stundum lagt með þeim fullt meðlag fram á
fermingaraldur. Þó er hitt tiðast, að nokkur hluti, og stundum
allt að helmingi, er dreginn af meðlagi barna, eftir að þau hafa
náð 10 eður 12 ára aldri. Aftur á móti kemur það stundum fyrir,
að með ómögum verður að leggja talsvert fram yfir vanalegt
ómagameðlag, einkum ef fullorðið fólk verður sökum sjúkdóms
eður ellilasleika að njóta framfæris af sveit.
Samkvæmt þessu er í eftirfylgjandi skýrslu, fyrir árin 1863 og
1872, ómögunum eður niðursetunum skipt í þrjá flokka, eftir því
hve þungir þeir hafa verið. [Sjá næstu síðu]
TÓLFTI ÞÁTTUR.
Um veðráttufar og loftslag: Vér ceskjum mikillega yður j'ióknaðist
að semja handa oss almenna lýsingu á pvííyðarsýslu, og hafa pá, eins
og verður, hliðsjón af prestaspurningum um petta efni (22.-29.
spurningu)?
1. grein.
Eigi verður kallað veðrasamt i þessari sýslu, og ber það til þess,
að stormar eru sjaldan miklir né langvinnir. Aftur á móti eru
vindar mjög tíðir, og eru það að tiltölu fáir dagar, er svo líða, að
logn sé frá morgni til kvelds. Tíðastir eru norðanvindar, einkum
útnyrðingur, og blæs hann jafnaðarlega á öllum tímum árs.
Hvössust verða sunnanveður, einkum á útsunnan. Veðurstaða er
oftast vestlæg, þó eigi á þvervestan. Austanveður eru sjaldan, en
hvasst verður stundum af þeirri átt. Þótt veður standi einatt af
norðri, eru norðanvindar sjaldan miklir, þó helzt á haustum og
vetrum. Á haustum eru norðanstormar einkum hættulegir;
48