Skagfirðingabók - 01.01.1982, Blaðsíða 172
ANNÁLL ÚR SKAGAFIRÐI 1936-38
eftir STEFÁN VAGNSSON
Hcr birtist annar hluti annáls Stefáns Vagnssonar, er hófst í síðustu (10.)
Skagfirðingabók. Þar er gerð grein fyrir samningu hans, og því er vísað
þangað til frekari glöggvunar lesendum.
1936
Síðastliðinn vetur var harður hér, og það allt fram á sumarmál.
Hér út að austan tók aldrei upp þann snjó allan veturinn, sem
lagði i veturnóttahríðinni, og bætti sífellt á. Þar var því orðið
jarðlaust um og eftir áramót, og þetta hélzt allan veturinn. Það
var því í miklum hluta sýslunnar, að undanteknum nokkrum
dala- og sjávarjöröum, þrotlaus innistaða á öllum skepnum ná-
lega allan veturinn fram á sumar. En um sumarmál snöggbatn-
aði. Leysti þá alla snjóa með hægum þey, og kom jörðin víða
græn undan gaddinum, sem hafði hulið hana allan veturinn,
kjarngóð og kærkomin skepnum eftir þessa löngu húsvist. Hross
og fé var því sloppið af fóðrum, enda veitti ekki af, því allmargir
voru orðnir heylitlir og heylausir, og var þó keyptur og gefinn
mjög mikill fóðurbætir. Var að tilhlutun landsstjórnar fenginn
hingað fóðurbætir fyrir 50 þúsund kr., og alls mun hún hafa
útvegað fóðurbæti fyrir Norður- og Austurland, en það var
harðindasvæðið, fyrir hátt á 4. hundrað þúsund krónur. Er það
mikill skattur á bændur, en sem betur fer ekki á glæ kastað, því
fjárhöld urðu hér afburða góð, sáralítill lambadauði og féð ágætt
til niðurlags í haust. Grasspretta var ágætlega góð, og nýting á
töðum hin ákjósanlegasta, en seinni hluti sumarsins var úr-
komusamari, einkum síðari hluti ágústs og fyrri hluti septem-
bers. Rétt fyrir miðjan september kom þurrkflæsa. Náðist þá
170