Skagfirðingabók - 01.01.1982, Blaðsíða 181
ANNÁLL ÚR SKAGAFIRÐI
slíka ferð farið á yngri árum, ætti hann að skrásetja hana, því hún
ætti sannarlega heima í því safni. Svo er með ýmislegt fleira. Og
þó einhverjum finnist það máske lítils virði, getur þannig hitzt á,
að sú frásögn, þótt stutt sé, fylli út aðra sögu, sem þetta atvik
hefir einmitt vantað í. Það getur líka verið byrjun á öðru meiru,
sem enginn hefir þá munað eftir í svipinn, fyrr en þessi stutta
frásögn kom. Enginn mundi fremur Vestur-Islendingum geta
lýst betur tildrögum og aðdraganda til vesturfaranna, og því
árferði, sem þá var, verzlunarháttum, o. s. frv. Það væri gaman að
eiga góða ferðasögu héðan vestur til Vínlands. Svo margir ágætir
menn og konur lögðu héðan í vesturvíking á þeim árum. Eins
mundi verða vel þegið, ef kynni fólk sögur um einkennilega
menn, sem fyrrum voru fylgifé hverrar sveitar að kalla mátti.
Eins af svaðilförum á sjó og landi, sleðaferðum í kaupstað að
vetrinum, vertíðinni við Drangey, göngum og fjallaferðum,
grasaferðum o. fl., o. fl.
Ef lesendum skyldi detta í hug að ritfesta eitthvað af þessu, og
þess vonast ég fastlega, þá sendið þetta til mín, ég skal koma því
á framfæri í safnið til sögunnar, og allir munu verða stórþakk-
látir fyrir. A þann hátt væri hægt að sýna rækt til héraðsins og
vinna góðu málefni gott gagn, því vitanlega yrði það metnaður
Skagfirðingum, að saga vors ágæta héraðs stæði ekki að baki
öðrum héraðssögum, hvað efni og frágang snertir; og kæmist
hún út sómasamlega mundi það þykja góð sending. Bið ég alla
að hugfesta þetta.
19- janúar 1937.
1937
Tíðarfarið hefir verið allmislynt á hinu umliðna ári. Seinni hluti
vetrarins var gjaffrekur og vorið kalt. Urðu þá ýmsir heylitlir,
sem þó ekki varð að meini, því aðrir gátu þá hjálpað og auk þess
hægt að ná í fóðurbæti, síldarmjöl, sem er alveg ágætt til fóðr-
unar. Fénaðarhöld urðu góð, þrátt fyrir allt, og féð reyndist
179