Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.1982, Page 71

Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.1982, Page 71
MULAÞING 67 norður á Herjólfsvík og bjarga fénu þar en sökum þess hve áliðið var orðið, og við vissum að fólkið heima myndi undrast um okkur, kom okkur saman um að annar okkar skyldi fara heim. Blábjörg heitir þverhnípi utan í fjallinu milli Skálaness og Herjólfs- víkur. Gegnum flug þessi ofarlega liggur svonefnd Mosfellsrák. Neðan við hana er standberg í sjó en klettar ofan við. Sjálf rákin er skriða, en á einum stað í henni er gil sem í er hörð móhella. I gil þetta eða skot safnast fönn um leið og nokkur snjór kemur. Rákin er nokkuð misbreið, 8—10 metra, og snarbrött. Þarna fóru Húsvíkingar um með hesta í auðu og frostlausu. Móhelluskotið er snarbratt, eins og rákin sjálf, og stund- um ekki fært nema hlaupa það þegar móhellan er hörðust. Þetta var hin venjulega leið milli Skálaness og Herjólfsvíkur. Nú var Mosfellsrák vitanlega gersamlega ófær og þar að auki alófært norður í hana sökum snjódýptar. Skálanesskriður voru einnig bráðófærar eins og fyrr getur. Voru okkur því lokaðar venjulegu leiðirnar af nesinu. Við fórum þess vegna upp af nesinu og urðum samferða, fórum upp svonefndan Kapla- hrygg og upp á Skálanesheiði; þar skildu leiðir. Olafur fór heim en ég norður Heiðarbrúnir og norður á Herjólfsvík. Vissi ég að allt var undir því komið að mér tækist að ná þangað norður fyrir morgunflóðið og hraðaði mér því eins og mér var unnt. Klukkan hálf sjö um morguninn var ég kominn norður á Herjólfsvík en háflóð var klukkan átta. Mátti það ekki tæpara standa því brimið var farið að ganga undir féð þar sem það stóð í einum hnapp í Norðurkrókn- um á Herjólfsvíkursandinum. Hins vegar var veðrið dáiítið farið að batna, orðið lygnara en áður og tekið að draga úr snjókomunni. Mér tókst að ná fénu upp af Herjólfsvíkursandi með því að troða fyrir það slóð. Einnig veitti hundurinn, sem með mér var, dyggilega aðstoð en án hans hefði ég ekki komið fénu upp. Stóð ég svo yfir hópnum þar til tekið var að fjara aftur eða fram um klukkan hálf ellefu um morgun- inn. Ur því að heimilisástæðurnar voru, eins og áður hefur verið lýst, með þeim hætti að kvenfólkið lá í mislingum hafði matseld öll gengið nokkuð úrskeiðis eins og verða vill þegar karlmenn eiga að ganga í eldhúsverk- in. Af þessum sökum höfðum við Ólafur farið mjög illa nestaðir að heiman kvöldið áður, aðeins gripið með okkur lítinn bita sem næstur var hendi er við héldum af stað. I hann höfðum við svo nartað um nóttina. Fór líka svo að nesti okkar var gengið til þurrðar meðan við vorum enn suður á Skálanesi enda hafði okkur aldrei órað fyrir að við ættum eftir að lenda í öðrum eins erfiðleikum og raun varð á eða að svona seint
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172
Page 173
Page 174
Page 175
Page 176
Page 177
Page 178
Page 179
Page 180
Page 181
Page 182
Page 183
Page 184
Page 185
Page 186
Page 187
Page 188
Page 189
Page 190
Page 191
Page 192
Page 193
Page 194
Page 195
Page 196
Page 197
Page 198
Page 199
Page 200
Page 201
Page 202
Page 203
Page 204
Page 205
Page 206
Page 207
Page 208
Page 209
Page 210
Page 211
Page 212
Page 213
Page 214
Page 215
Page 216
Page 217
Page 218

x

Múlaþing: byggðasögurit Austurlands

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Múlaþing: byggðasögurit Austurlands
https://timarit.is/publication/1153

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.