Skagfirðingabók - 01.01.2014, Qupperneq 36
SKAGFIRÐINGABÓK
36
sitt síðasta próf og fór í siglinguna.
Það skyggði mikið á, að fóstri Jóns,
Sigurður, hafði verið hjá bróður sínum
Jóni Guðmundssyni, faktor á Siglufirði,
þennan vetur og dottið af bryggju þar
og drukknað. Jón hafði vonast til að geta
launað þeim fósturforeldrum sínum allt,
sem þau höfðu fyrir hann gert, sem var
mikið. Anna fóstra Jóns kom strax til
okkar, þegar við vorum búin að koma
okkur fyrir á nýja heimilinu.
Við komum til Kópaskers 22. júní
1921. Þorpið var lítið. Þar var sláturhús,
verslunarhús Kaupfélags Norður-Þingey-
inga, en íbúð hafði verið innréttuð í því
húsi fyrir kaupfélagsstjóra og fjölskyldu
hans, eitt íbúðarhús, sem nefndist Bakki,
og nokkrir skúrar, sem notaðir voru sem
geymslur og pakkhús. Kaupfélag hafði
verið stofnað í héraðinu árið 1894 og
fyrsta húsið, sem byggt var á Kópaskeri,
var reist árið 1895, en það var vöruhús
fyrir kaupfélagið.
Jón Jónsson Gauti, sem líka var
bóndi, var fyrst fyrir kaupfélaginu, en
það var í byrjun pöntunarfélag. Fyrsti
kaupfélagsstjóri, sem sat á Kópaskeri,
var Björn Kristjánsson frá Víkingavatni.
Hann var ákaflega duglegur maður og
vinsæll. Hann var þá nýlega giftur seinni
konu sinni, Rannveigu Gunnarsdóttur frá
Skógum í Öxarfirði. Hún var mikið yngri
en hann, fríð kona sýnum og mikilhæf
húsmóðir. Þau áttu eina dóttur á öðru ári
þegar við komum þarna.
Við komum með strandferðaskipi með
dæturnar tvær, sú eldri var þriggja ára, en
hin á fyrsta ári. Kaupfélagsstjórahjónin
tóku vel á móti okkur og buðu okkur
inn á heimili sitt, sem var sérlega vistlegt.
Mig minnir, að við höfum gist þar fyrstu
nóttina.
Læknisbústaðurinn hét Ás og var
ekki í kauptúninu. Hann var byggður
árið 1911 í landi Snartarstaða, sem var
stórbýli á að giska 1 km frá kauptúninu.
Ás stóð sunnanvert í gróðursælum lyngási
með djúpum lautum, sem voru tilvaldir
sólbaðsstaðir og mikið notaðir sem slíkir.
Húsið var kallað eftir ásnum, sem það stóð
í. Þetta var ákaflega vel valinn staður og
húsið fallegt timburhús, hvítt með rauðu
þaki. Ás tilheyrði sveitinni. Það var stutt
Kópasker árið 1920. Lengst til vinstri er
verslunarskúr, byggður 1902 sem Sveinn
Einarsson frá Hraunum í Fljótum átti en
þeir bræður, Jón og hann, voru búsettir á
Raufarhöfn og stunduðu þar verslun. Þetta
var kallað Sveinsskúrinn og seldi Sveinn
þaðan vörur fram um 1920. Háa húsið er
Búðin, byggð 1918–1919, verslunarhús
Kaupfélagsins. Næst er Kaupfélagshúsið með
áföstu pakkhúsi, byggt 1908, og hægra megin
við það Sláturhúsið, byggt 1912. Hægra
megin á mynd er Bakki, elsta íbúðarhúsið á
staðnum, byggt 1912, en lengst til hægri sér í
Aðalsteinshúsið.
Ljósm.: Jón Víðis.
Eigandi myndar: Kristveig Björnsdóttir.