Skagfirðingabók - 01.01.2014, Side 70

Skagfirðingabók - 01.01.2014, Side 70
SKAGFIRÐINGABÓK 70 fór fram á Hofi strax í nóvember 1528, en bréfið virðist ekki vera innsiglað fyrr en fimm árum síðar eða á Hólum 12. febrúar 1533. Hvers vegna líður svo langur tími? Leiða má líkur að því að eitthvert málastapp hafi orðið út af arfinum vegna þess að vottarnir taka fram að þeir séu vissir í sinni sök: „vissum vér fyrir full sannindi, að fyrr nefndri Þórunni var svo miklum peningum lofað að brúðkaupsdegi þeirra Hrafns heitins, því vér vorum allir í því sama brúðkaupi.“28 Í yngri heimildum er fullyrt að ekki hafi verið eining um arfinn.29 Þess er ekki getið í samtímaheimildum. Svo langur tími var óvenjulegur en engan veginn einsdæmi. Tvennt kemur fram í virðingarbréfinu sem er umhugsunarvert. Annars vegar segir að Jón biskup borgi Þórunni dóttur sinni það sem hún hafði átt í búi Hrafns og fyrr er talið. Bendir það til þess að Jón hafi farið með fé Þórunnar sem sitt eigið eftir lát Hrafns sem faðir og forsjármaður. Þannig að ef til vill kemur þetta allt út á eitt, fjármál Þórunnar og Jóns föður hennar hafa verið svo samtvinnuð að erfitt reyndist að aðgreina fjárhaginn. Einnig er mjög líklegt að uppgjör hafi þurft að fara fram vegna fyrirhugaðs brúðkaups Þórunnar og Ísleifs Sigurðssonar þá um vorið. Hins vegar var Jón samkvæmt bréfinu skipaður fjárhaldsmaður barnsins Ísleifs Hrafnssonar. Í kaupmála Þórunnar og Hrafns Brandssonar frá 1526 eru uppi á borðinu mörg hundruð hundraða í jörðum, en engin jörð nefnd á nafn. Ekki er vitað hvaða jarðeignir voru í eigu Hrafns Brandssonar nema Glaumbær í Skagafirði sem hann náði út úr eignum Teits Þorleifssonar eða „hafði keypt að nafninu til“ og sá helmingur Bjarnaneseigna sem samkvæmt Seyludómi féll undir konung.30 Einnig er til heimild um að Hrafn hafi eignast jörðina Skarð í Fnjóskadal árið 1527, þegar Solveig Hrafnsdóttir föðursystir hans fær honum hana til eignar, með samþykki Jóns biskups og systranna á Reynistað. Í texta bréfsins kemur raunar fram að Skarð hafi verið gömul ættareign, gefin Reynistaðarklaustri með Solveigu. Hrafn megi því frjálslega taka við jörðinni „sér og sínum eftirkomendum til ævinlegrar eignar“.31 Ekkert segir af eftirmálum þessa gjafabréfs, en spyrja má hvort jörð sem gefin var klaustrinu hafi svo frjálslega mátt skipta um eigendur. Jón biskup fær síðar Skarð í viðskiptum við Hrafn tengdason sinn árið 1528.32 Sjö árum síðar notar biskup Skarð í Fnjóskadal sem milligjöf í jarðakaupum sem hann átti við Bessa Þorláksson.33 Var þetta ef til vill dæmi um hvernig bæði veraldlegir auðmenn, jafnt sem æðstu stjórnendur hinnar kaþólsku kirkju á miðöldum, gátu braskað með kirkjueignir eins og þær væru eigið fé? Vilborg Auður Ísleifsdóttir telur þetta dæmi um, hvernig 28 ÍF IX, bls. 476. 29 Sbr. Bogi Benediktsson, 1881–1884, bls. 322 og JS 70 fol., bls. 131. 30 Páll Eggert Ólason, 1919, bls. 107. Í skrá um jarðir Teits Þorleifssonar frá 1522 eru taldar upp sem eignir hans í Hornafirði 12 jarðir og tveir jarðarhelmingar, auk reka fyrir Uppsalalandi (ÍF IX, bls. 93). 31 ÍF IX, bls. 402–403. 32 ÍF IX, bls. 448–450. 33 ÍF IX, bls. 746–747.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162
Side 163
Side 164
Side 165
Side 166
Side 167
Side 168
Side 169
Side 170
Side 171
Side 172
Side 173
Side 174
Side 175
Side 176
Side 177
Side 178
Side 179
Side 180
Side 181
Side 182
Side 183
Side 184
Side 185
Side 186
Side 187
Side 188
Side 189
Side 190
Side 191
Side 192
Side 193
Side 194
Side 195
Side 196
Side 197
Side 198
Side 199
Side 200

x

Skagfirðingabók

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skagfirðingabók
https://timarit.is/publication/1154

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.