Skagfirðingabók - 01.01.2014, Page 78

Skagfirðingabók - 01.01.2014, Page 78
SKAGFIRÐINGABÓK 78 snúð en það breytir ekki því, að hún hafði móður sinni alla tíð „mestan styrk og manndóm veitt“ eins og Helga segir sjálf í bréfinu. Þannig kemur Þórunn skýrt fram í heimildum í hefðbundnu hlutverki kvenna sem dóttir, systir, eigin- kona og frænka. Fyrri hluta ævi sinnar átti hún tvo eiginmenn sem báðir voru stórauðugir höfðingjar. Meðan þeirra naut við stýrðu þeir lífi Þórunnar, að minnsta kosti fjárhagslega þættinum. Um fertugt var hún búin að missa þá báða. Á sama tíma gengu siðaskiptin yfir á Norðurlandi og faðir hennar og bræður voru teknir af lífi. Þá er engu líkara en straumhvörf verði í lífi Þórunnar á Grund. Hún kemur eftirleiðis sterkari fram í heimildum sem kaupsýslukona og fullgildur aðili að deilu- og dómsmálum sem að henni snúa. Deilurnar um Hof á Höfðaströnd og Veturliðastaði í Fnjóskadal voru tímafrekar, taka yfir áratugi, en Þórunn lét hvergi deigan síga. Það er varla tilviljun að hún beitir sér af svo miklum krafti inn á valdasvæði karla, einmitt á þeim tíma sem hún er farin að ráða sér sjálf, þ.e. eftir 1550. Hún hefur séð tækifærin, kunnað að nýta sér þau og haft styrk til þess. Tímar Þórunnar voru umbrotatímar. Meiri breytingar gengu yfir á Íslandi en áður voru dæmi um. Annars vegar var ásælið danskt ríkisvald með sterkari miðstýringu en áður þekktist. Hins vegar var hið gamla íslenska miðaldaþjóðfélag með öflugt ættar- og fjölskyldukerfi sem rekja mátti langt aftur. Stjórnmálin ein- kenndust af sterkum mönnum bæði lærðum og leikum, sem höfðu fyrst og fremst persónufylgi til að koma málum sínum fram. Þessir menn notuðu flestar aðferðir til að halda óbreyttu ástandi og gripu jafnvel til vopna eins og raunin var með Jón Arason, þegar honum þótti danska ríkisvaldið seilast um of til valda hér. Þórunn ólst upp í hinu gamla kerfi og var að mörgu leyti barn þess alla tíð. Hún neitaði að viðurkenna nýjar áherslur og danskt efnahagskerfi. Hún hélt dauðahaldi í gamla samninga og fornan rétt fjölskyldunnar til eigna og áhrifa og beitti sér hart til að halda í fjölskylduauðinn. Þannig kom hún öflug fram á hefðbundið valdasvið karla. Það er ljóst að Þórunn hefur náð undir sig einhverju af eignum biskupsfjölskyldunnar eftir siðaskiptin, þrátt fyrir Oddeyrardóm. Henni fannst hún eiga sinn rétt og stóð fast á honum eins og samskipti hennar við konungsmenn vegna Grundar í Svarfaðardal, sýna. Og hún hafði umráð yfir fleiri jörðum sem voru fjölskyldueign, notaði þær ýmist í jarðaskiptum eða deildi um þær fyrir dómstólum. Siðbreytingin hefur því ekki haft áhrif á eignastöðu Þórunnar nema þá til hins betra. Samskipti Þórunnar og Guðbrands biskups Þorlákssonar benda einnig til þess að Þórunn hafi haft talsverð ítök í efnahagslífinu, meiri en honum þótti gott. Ekkert bendir til annars en að hjóna- bönd Þórunnar hafi verið farsæl. Lesa má úr heimildum að til tveggja þeirra fyrstu var stofnað af hagrænum ástæðum. Þau héldu vel þrátt fyrir það, enda skilnaður nánast óhugsandi. Hjónaskilnaðir tíðk- uðust ekki í kaþólskum sið og þegar mikið var í pottinum var fráleitt að fara að sundra eignum, þannig hélt auðurinn hjónaböndunum saman. Þórunn var líka auðhyggjukona, þannig að hún hefur ef til vill ekki látið ástina glepja sér sýn. Þriðja og síðasta hjónaband Þórunnar
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172
Page 173
Page 174
Page 175
Page 176
Page 177
Page 178
Page 179
Page 180
Page 181
Page 182
Page 183
Page 184
Page 185
Page 186
Page 187
Page 188
Page 189
Page 190
Page 191
Page 192
Page 193
Page 194
Page 195
Page 196
Page 197
Page 198
Page 199
Page 200

x

Skagfirðingabók

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skagfirðingabók
https://timarit.is/publication/1154

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.