Skagfirðingabók - 01.01.2014, Qupperneq 170
SKAGFIRÐINGABÓK
170
Skagfirðingur. Auk hans eru tveir prestar
sem fluttu sig á milli sókna og tveir
almúgamenn sem aðeins hafa flutt sig
frá nágrannasýslunum. Til viðbótar eru
nefndar þrjár konur sem áttu uppruna
sinn að rekja til Skagafjarðar. Staða þeirra
er ekki tiltekin hjá Jóni Árnasyni svo þær
hljóta að teljast almúgakonur sem hafa
flust eftir hjónaband eða vegna annarra
aðstæðna.
Þessi fjöldi Skagfirðinga meðal heim-
ildamanna í safninu hlýtur að teljast
nokkuð merkilegur. Hið sama gildir um
hina horfnu Vestfirðinga og breytir þetta
að nokkru þeirri mynd sem áður hefur
verið dregin upp af þjóðsagnasafninu. Það
skal þó tekið fram að til þess að geta vitað
með vissu hvaðan heimildamenn komu,
þyrfti að kanna þá alla út frá manntölum
og ættfræði og ferðir þeirra, svo sem í
ver á Suðurlandi, því sagnageymd hvers
einstaklings mótast af ævi hans, búsetu
og upplifunum í daglegu lífi.
Með tilliti til þessa fjölda heimilda-
manna frá einu svæði er nauðsynlegt að
vita fjölda þeirra sagna sem eru eignaðar
þeim og helst að bera þann sagnafjölda
saman við önnur svæði. Þetta eru nauð-
synlegar upplýsingar vegna þess að ef
fjöldi sagnanna héldist í hendur við
fjölda heimildamannanna skagfirsku, þá
breytti það miklu um hvernig talað hefur
verið um þjóðsagnasafnið á umliðnum
árum.
Í töflu 5 má sjá þann fjölda sagna sem
er frá skagfirskum heimildamönnum
ásamt nöfnum þeirra, þjóðfélagsstöðu og
æviárum. Tekið skal fram að staða þeirra
var einungis skrifuð í töflu ef hún var
tekin fram í 6. bindi þjóðsagnasafnsins.
Skagfirsku heimildamönnunum eru
aðeins eignaðar 333 sagnir, en til saman-
TAFLA 4
1. Árni Jónsson bóndi, Ásbúðum Skag. Síðast V-Hún. (þar í töflu)
2. Höskuldur Jónsson, Grundarkoti í Héðinsfirði Eyj. (þar í töflu) síðast Skagaf.
3. Páll Jónsson prestur, Völlum Eyj. (þar í töflu) síðar Skag.
4. Páll Tómasson prestur, Grímsey Eyj. (þar í töflu) síðar Skag.
5. Sigríður Jónsdóttir (dóttir prentarans á Hólum), Malarrifi Frá Skag.; Snæf. og Hnapp. (þar í töflu)
6. Sigurður Guðmundsson málari, Reykjavík Fæddur í Skag.; Reykjavík (þar í töflu)
7. Svanhildur Helgadóttir, Stað Fyrst Skag.; Síðar Strand. (þar í töflu)
8. Þóranna Þorsteinsdóttir, Syðra-Tungukoti Frá Skag.; síðast A-Hún. (þar í töflu)
TAFLA 5
Nr. Nafn Æviár Staða Fjöldi sagna
1. Anna Björnsdóttir, Þúfum 1867-1917 Ónefnd 1
2. Árni Jónsson, Ásbúðum 1778-1865 Bóndi 1
3. Benedikt Friðriksson, Miklabæ í Óslandshlíð 1864-1896 Verslunarmaður 1
4. Björg Ólafsdóttir frá Barði Dáin 1690 Prestsfrú 1
5. Björn Þorleifsson, Hólum 1663-1710 Biskup 15
6. Einar „durgur“ Guðmundsson, á Skaga. 1777-1860 Flakkari á Skaga 1
7. Einar Bjarnason, Mælifelli 1782-1856 Fræðimaður 16
8. Einar Guðmundsson, Hraunum 1776-1855 Umboðsmaður 2