Skírnir - 01.04.2001, Blaðsíða 228
PÁLL BJÖRNSSON
Er hægt að rita hlutlægt um
andlega hreyfingu?
Hjalti Hugason (ritstjóri)
Kristni á Islandi
Reykjavík: Alþingi, 2000
Bindi III: Frá siðaskiptum til upplýsingar
Aðalhöfundur: Loftur Guttormsson; aðrir höfundar: Einar Sigurbjörnsson,
Inga Huld Hákonardóttir, Margrét Eggertsdóttir, Njáll Sigurðsson, Þóra
Kristjánsdóttir
Bindi IV: Til móts við nútímann
Aðalhöfundar: Þórunn Valdimarsdóttir og Pétur Pétursson; aðrir höfundar:
Einar Sigurbjörnsson, Gunnar Kristjánsson, Hörður Askelsson, Inga Huld
Hákonardóttir, Njáll Sigurðsson, Þóra Kristjánsdóttir
Alþingi ákvað fyrir um áratug að gangast fyrir ritun yfirlitsverks um
aðdraganda og afleiðingar þeirrar ákvörðunar að lögleiða kristni á Islandi.
Deila má um réttmæti þess að þingið standi sjálft fyrir slíkri sagnaritun.1
En hinu verður ekki á móti mælt að um sextíu milljóna króna framlag
þess skapaði ákjósanlegar ytri aðstæður til framgangs verksins. Það er
raunar ekki annað hægt en að taka heilshugar undir þá skoðun að hér hafi
betur verið staðið að verkstjórn allri en í öðrum yfirlitsverkum á sviði ís-
lenskrar sögu.2 Svo sannarlega gefur ritið gott yfirlit yfir sögu kristninn-
ar hérlendis, raunar svo gott að í þessari grein verður einungis hægt að
ræða um nokkur valin atriði sem tengjast aðferðafræði og verklagi höf-
undanna. Rétt er að geta þess strax að hér verður lengur staldrað við at-
riði sem gagnrýna mætti höfundana fyrir en það sem þeir hafa vel gert.
Öll bindin eru ríkulega skreytt myndum sem njóta sín vel á vönduð-
um pappír bókanna. Maður gæti eytt löngum stundum í að rýna í eftir-
tökur af prentverki, handritum, málverkum og öðrum varðveittum minj-
um. Þegar íslenskt myndefni þrýtur hefur verið stuðst við erlent efni, oft-
ast norrænt, og er slíkt vel við hæfi í riti sem fjallar um samvestræna trú-
arhreyfingu. I einstaka tilfellum virðast þó myndir einvörðungu hafa ver-
1 Sveinbjörn Rafnsson sagnfræðingur setti t.d. fram slíkar efasemdir á málþingi
sem útgefendur stóðu fyrir í Þjóðarbókhlöðu 21. október 2000.
2 Gunnar Karlsson, „Verkið sem tókst að vinna. Kristni á Islandi I-IV“, Ný saga
12 (2000), bls. 21-22.
Skírnir, 175. ár (vor 2001)