Skírnir - 01.04.2001, Blaðsíða 268
262
GUNNAR HARÐARSON
SKÍRNIR
í Galleríi Suðurgötu 7 sýndi hann
fyrst opinberlega á samsýningu árið
1977 og þar var einnig fyrsta einka-
sýning hans, sem áður segir, árið
1980. Síðan þá hefur hann sýnt
margoft bæði einn og með öðrum,
heima jafnt sem erlendis. Eggert
dvaldi um árabil í borginni Leeds í
Englandi en hefur búið og starfað í
Reykjavík undanfarin ár.
Þó að málverk Eggerts hafi vakið
einna mesta athygli listunnenda á
síðari árum hefur hann alls ekki ein-
skorðað listsköpun sína við það
form. Hann hefur unnið í ýmsa
miðla, bæði rýmisverk, innsetningar,
ljósmyndaverk og bækur, auk mál-
verkanna. Á bókasafni ísafjarðar
1980 voru t.d. ljósmyndir af hvers-
dagslegum hlutum sem hann hafði
umbreytt á myndrænan hátt. Á þess-
um tíma vann Eggert einnig allmörg
bókverk sem sum geymdu ljós-
myndir af náttúrunni og jurtaríkinu.
Á sýningu Eggerts í Nýlistasafninu 1982 var gryfja safnsins fyllt af vatni
og ljósmynd af útsaumuðu blómamynstri komið fyrir á endaveggnum, en
á gagnstæðum vegg var vasaljós sem lýsti á myndina sem speglaðist í vatn-
inu. Á tveim einkasýningum í Nýlistasafninu, 1984 og 1987, sýndi Eggert
málverk sem voru unnin á svipaðan hátt og síðari verk hans, en með öðru
myndefni, að vísu með áþekkri, upphleyptri áferð en með heldur grófari
pensildráttum þó. Myndunum var hins vegar skipað niður í sýningarrým-
ið með svipuðum hætti og um innsetningu væri að ræða, þ. e. sýningin var
hugsuð sem ein rýmisheild. Á sýningu í Nýlistasafninu 1991 sýndi Eggert
eins konar gólfmálverk, en í þetta skipti notaði hann ekki vatn, heldur ryk
úr ryksugupokum, ásamt litadufti, sem dreifðist vítt og breitt um gólfið.
Tilraunina með samspil mynda og rýmis endurtók Eggert á Nýlista-
safninu 1999, þar sem hann sýndi myndir af íslenskum blómum á hvítum
grunni sem féllu að samlitum veggjum safnsins; blómin nánast spruttu út
úr veggjunum. I þessum myndum eru allskýr skil milli bakgrunns og for-
grunns, ólíkt ýmsum öðrum blómaverkum Eggerts. Síðar gerði hann einnig
tilraun með dökkan bakgrunn fyrir blómamyndirnar og minnti bak-
grunnurinn um sumt á hraun- eða klettaveggi sem litirnir spretta upp úr,
ekki ósvipað og í ýmsum eldri ljósmyndum Eggerts, þar sem birtan kem-
Hluti úr málverki. Olía á striga, 1994-
95, 80 X 110 sm. Eigandi: Listasafn
íslands.