Tímarit Máls og menningar - 01.12.2013, Page 24
A u ð u r Ava Ó l a f s d ó t t i r
24 TMM 2013 · 4
með allt niður um sig í fjármálum, gildir ekki hið sama um bókmenntir og
listir …“
Nú, nú, stendur þá ekkert um íþróttir? Jú, jú, þegar Íslendingar vinna leik
í fótbolta telst það til tíðinda og er skrifaður um það dálkur á íþróttasíðu
norska Folkebladed. En hvað með handboltann? Það hlýtur að vera fjallað
um íslenskan handbolta? Nei, ekkert um handbolta. Mér skilst að handbolti
sé í 166. sæti yfir vinsælustu íþróttagreinar heims, næst á eftir indversku
rottuhlaupi. Meira að segja Frakkar sem mig minnir að hafi nokkrum
sinnum orðið Evrópu- og heimsmeistarar í handbolta – nema það hafi verið
Ólympíumeistarar – hafa almennt ekki áhuga á íþróttagreininni. Því síður
vita þeir að við Íslendingar erum svona góðir í henni. Hins vegar virðast allir
Frakkar (og hér vitna ég í afar vísindalega, persónulega könnun) þekkja að
minnsta kosti fjóra íslenska rithöfunda sem þeir hafa lesið á síðasta ári. Hvað
erum við aftur mörg? Já alveg rétt, 322.113.
Já, góðir gestir, það vofir stöðugt yfir okkur stríð. Ef við deyjum ekki 17.
júní, þá deyjum við 3. nóvember. Ef ekki þriðjudagskvöld, þá um hádegi
á sunnudegi. Sex milljónir drepnir í stríði er ekki skáldskapur heldur töl-
fræði, tveir eru hins vegar skáldskapur. Og við þurfum að vita háralitinn og
ef fótleggur liggur í vegkantinum, þurfum við að vita númer hvað skórinn
var, hvort hann hafi verið í sokkum og umfram allt, voru þetta spariskór
eða strigaskór? Í því felst hið stóra samhengi hlutanna. Því listin er eins og
Lúðurhljómur í skókassa svo ég vitni í heiti á sýningu Magnúsar Pálssonar
myndlistarmanns.
Og af því að allir tímar eru ljóðrænir og allir dagar eru dagar bókarinnar
ætla ég í lokin að leyfa ykkur að heyra hvernig nýjasta uppáhaldsskil-
greiningin mín á fegurð hljómar. Það er kvenlega rökrétt í ljósi þess að
erindið hófst í Kaupmannahöfn, að hún sé úr matreiðsluþætti á dönsku sjón-
varpsstöðinni DR1:
„Þær þúsund leiðir sem finnast til að búa til góða köku endurspegla vilja
manna til að nálgast fegurð – í smáatriðum sem skipta máli.“
Góðar stundir.
Tilvísanir
1 Smásjá er tæki til að skoða hluti sem eru of smáir til að sjást með berum augum. Fyrsta smásjáin
var smíðuð af gleraugnasmið um 1600.
2 Og meðan ég man: Hjartanlega til hamingju með verðskulduð verðlaun suður á Spáni, Arn-
aldur. Ég er að vísu ekki sammála þeirri kenningu sem ég hleraði eftir í ræðu að glæpasagan
sé eins og lúpínan sem búi til nauðsynlegan jarðveg til að íslenskar fagurbókmenntir fái þrifist
erlendis. Eða síðan hvenær hefur Stieg Larsson hjálpað sænskum fagurbókmenntum?
3 Borges birti tvær ritgerðir um tímann árin 1944 og 1946 sem hann felldi síðan undir einn titil:
Ný afneitun tímans, Nueva refutación del tiempo. Tilvísunin er úr ritgerð Ólafs Gíslasonar um