Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.12.2013, Síða 138

Tímarit Máls og menningar - 01.12.2013, Síða 138
D ó m a r u m b æ k u r 138 TMM 2013 · 4 til djúprar samúðar með fénu: „Milli rimlanna aftan á [vörubílnum] sé ég glitta í döpur augu […] Ég set í gír og mjakast á eftir, vík mér undan að horf- ast í augu við skepnurnar sem híma aftan á pallinum […] Ég veit hvert þær eru að fara og ég sé á augnaráði þeirra að þær vita það líka“ (bls. 89). Að slátur- tíðinni lokinni kemur hann í verslun þorpsins, í kjötborðinu er „heill valköst- ur af dýrum sem nutu lífsins í móanum fyrir nokkrum vikum. Hver hefur gefið okkur leyfi til að deyða þau öll?“ (bls. 114–15) Hér að framan minntist ég á að hinir pólitísku þræðir sem rekja má í Suður- glugganum komi einnig fram í ljóða- bókinni Hér vex enginn sítrónuviður. Í ljóðinu „Auga fyrir auga“ má í raun greina alla þá þrjá pólitísku þætti sem minnst var á hér að framan, þ.e. stríðs- rekstur, peningahyggju og dýra- og nátt- úruvernd: Maðurinn er grimmastur tegunda Á haustin rekum við kindur sem hafa notið sumarsins við hlið okkar í sláturhús Hreinkýr eru myrtar frá kálfum sínum á fjöllum, af vel mettum athafnamönnum, sem eftir á gorta af drápinu í blöðunum Slátrarinn klappar barni sínu á kollinn að kvöldi, og morguninn eftir fer hann og drepur lambið sem nötrar af ótta í stíunni Fiskar fá ekki að synda upp í árnar án þess að vera kvaldir á önglum, og margir virðast halda að fiskar séu aðeins til svo hægt sé að pína þá með stöng (verstir allra eru veiðimenn sem „sleppa“ í nafni falskrar mannúðar) Fuglarnir sem fljúga um loftið, yfirleitt í mesta sakleysi, eru felldir á miðju flugi og hirtir upp í blóði sínu, með brostinn himin í augum Og eins og þetta sé ekki nóg, grisjum við jafnt og þétt okkar eigin tegund (fullyrðingin í upphafi endurtekin)4 Rithöfundur án lesenda Eitt áhugaverðasta viðfangsefni Suður- gluggans, sem ekki hefur verið minnst á hér, felst í margháttaðri umræðu um sjálfan skáldskapinn og sköpunarferlið. Þetta birtist ekki síst í viðfangsefni rit- höfundarins, þ.e. skáldsögunni, eða myllusteininum, sem hann rogast með: Það sem ég skrifa er saga um par sem fer á fjallahótel í útlöndum til að hressa upp á sambandið. Það gengur ekki vel að skrifa hana. Parið er einsog pappa- fígúrurnar sem amma klippti út fyrir mig þegar ég var lítill og ég lék mér að. Munurinn er sá að þær gæddi ég lífi með ímyndunaraflinu, en nú tekst það ekki. Fólkið liggur dauðalegt í hótelrúminu, sem er líka úr pappa (bls. 10). Hér birtist afar áhugaverð hlið á fyrir- ferðarmikilli umræðu verksins um sköpunarferlið, þ.e.a.s. hvernig beinlínis er fjallað um tengsl skáldskaparins við sjálft viðtökuefni sitt – pappírinn. Í þessu sambandi er reyndar vert að minnast á að enn á ný kallast Suður- glugginn á við Sandárbókina því að þar fer einnig fram umræða um pappír í
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132
Síða 133
Síða 134
Síða 135
Síða 136
Síða 137
Síða 138
Síða 139
Síða 140
Síða 141
Síða 142
Síða 143
Síða 144
Síða 145
Síða 146
Síða 147
Síða 148
Síða 149
Síða 150
Síða 151
Síða 152
Síða 153
Síða 154
Síða 155
Síða 156
Síða 157
Síða 158
Síða 159

x

Tímarit Máls og menningar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.