Tímarit Máls og menningar - 01.12.2013, Blaðsíða 88
Ó m a r Va l d i m a r s s o n
88 TMM 2013 · 4
– Kannski það, sagði ég.
– Nei, sagði hann þá. Það er alveg öruggt, hann verður alltaf með okkur.
The Truman Show
Þegar ég kom fyrst til Norður-Kóreu var Leiðtoginn kæri, Kim Jong-il,
við völd. Nú hefur hann einnig lokið sinni lífsferð og þá hefur tekið við
Arftakinn mikli, Kim Jong-un, sem þegar hefur verið skipaður fyrsti ritari
Verkamannaflokks Kóreu, formaður miðnefndar hersins, formaður varnar-
málanefndarinnar, æðsti yfirmaður alþýðuhersins og fastafulltrúi í mið-
stjórn Verkamannaflokksins. Afi hans er forseti alþýðulýðveldisins „til
eilífðar“ og faðir hans aðalritari flokksins „til eilífðar“. Engin merki eru enn
sjáanleg um að þriðji ættliðurinn muni stjórna landinu með öðrum hætti
en hinir tveir fyrri og því má helst reikna með að Norður-Kórea verði áfram
einangrað og óútreiknanlegt vandræðabarn í fjölskyldu þjóðanna. Pólitískar
greiningar á landinu, þróun þar og stjórnarfari verða að óbreyttu með
svipuðum hætti og áður – byggðar á ágiskunum vestrænna „sérfræðinga“
og frásögnum flóttamanna sem flestir leita til Suður-Kóreu og líður þar
að vonum eins og þeir séu lentir á tunglinu. Fræðimönnum er almennt
meinað að koma til Norður-Kóreu og þeir fáu sem þó komast til landsins fá
ekki að sjá nema það sem yfirvöldin ákveða og á sama hátt fá þeir yfirleitt
ekki að tala við aðra en „leiðsögumenn“ sína. Fræðimenn neyðast því til
að gera athuganir sínar úr fjarlægð. Enginn skortur er þó á herfræðilegum
samantektum, greinum og bókum, eða greinum um pólitík – en nánast allt
er skrifað úr fjarlægð og oftar en ekki af tiltekinni pólitískri sannfæringu eða
til stuðnings hervæðingu Vesturlanda.
Mín tilfinning eftir þrjár heimsóknir til Norður-Kóreu á árunum 2000–
2003 var kannski helst sambærileg við þá sem ég ímyndaði mér að væri
upplifun Trumans Burbank í kvikmynd Peters Weir frá 1998, The Truman
Show. Truman var orðinn fullorðinn þegar hann loks uppgötvaði að líf hans
var raunveruleikasjónvarpsþáttur í beinni útsendingu: fram að því hafði
hann enga hugmynd um hvar hann var staddur. Líf hans var tómt plat. Á
sama hátt er alþýðulýðveldið tilbúinn veruleiki: upphaf, miðja og endir alls
er Kim Il-sung, raunveruleg goðsagnapersóna, og sonur hans (sem smám
saman er einnig að verða opinber goðsagnapersóna) og sonarsonurinn sem
nú hefur tekið við og fær vafalítið sömu meðferð. Enginn annar núlifandi
þjóðarleiðtogi hefur viðlíka áhrif í landi sínu og þeir feðgar. Allt vald er frá
þeim komið og leitar þangað aftur, allt vald á himni og jörðu, eins og sagt
er um aðra feðga. Í Norður-Kóreu eru engar aðrar raunverulegar valdastofn-
anir.