Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.12.2013, Page 35

Tímarit Máls og menningar - 01.12.2013, Page 35
E i t u r TMM 2013 · 4 35 það nú annars má kalla sem hún leggur stund á klukkutímum og dögum saman. Rich átti þetta hús. Hann hafði keypt það þegar hann bjó með fyrri eiginkonu sinni, Bett. Því hafði verið ætlað að vera dvalarstaður um helgar og standa lokað yfir veturinn. Tvö lítil svefnherbergi, eldhúskrókur. Var í innan við eins kílómetra fjarlægð frá þorpinu. En svo hafði Rich byrjað að vinna við húsið, náði tökum á smíðunum, bætti við álmu undir tvö svefn- herbergi í viðbót og baðherbergi, og annarri álmu undir vinnuherbergið sitt, en breytti þeim hluta sem var upphaflega húsið í opið rými sem rúmaði stofu, borðstofu og eldhús. Bett fékk smám saman áhuga á þessu en í byrjun hafði hún ekkert skilið í því hvers vegna hann keypti þetta hreysi. Endur- bætur á húsnæði vöktu hins vegar alltaf áhuga hennar og hún keypti sér líka smíðasvuntu eins og hann átti og setti hana á sig. Hún þurfti eitthvað til að sökkva sér niður í eftir að hafa lokið við matreiðslubók og gefið hana út en það verkefni hafði staðið yfir í mörg ár. Þau áttu engin börn. En á sama tíma og Bett var að segja fólki frá því að nú hefði hún fundið sér nýtt viðfangsefni í lífinu, sem handlangari hjá smiði, og að þetta hefði fært þau Rich nær hvort öðru, var Rich orðinn ástfanginn af Nitu. Hún vann í nemendaskránni í háskólanum þar sem hann kenndi miðaldabókmenntir. Þegar þau elskuðust í fyrsta skipti var það innan um flísar og tréspæni í því sem átti eftir að verða aðalvistarvera hússins með sínu bogadregna lofti – þetta gerðist eina helgi þegar Bett var burtu í borginni. Nita skildi sólgleraugun sín eftir þarna, en ekki af ásetningi þó að Bett, sem aldrei gleymdi neinu, tryði því ekki. Eins og við var að búast urðu mikil læti um hríð, grátur og gnístran tanna, og þetta endaði með því að Bett flutti til Kaliforníu, síðan Arizona; Nita sagði upp starfi sínu á nemendaskránni að ráði þeirra sem þar réðu, og Rich missti af deildarstjórastöðu. Hann fór á eftirlaun snemma og seldi húsið sem hann átti í borginni. Nita fékk ekki að eiga litlu smíðasvuntuna en hún las bækurnar sínar glöð mitt í allri óreiðunni og framkvæmdunum, eldaði frumstæðar máltíðir á hellu og fór í langar skoðunarferðir um nágrennið og kom til baka með tígurliljur og villigulrætur sem hún setti í tómar málningardollur. Eftir að hún og Rich voru búin að koma sér fyrir blygðaðist hún sín dálítið fyrir hve hnökralaust hún hafði leikið hlutverk yngri konunnar, káta hjónadjöfulsins, hláturmildu og liðugu ungmeyjarinnar. Í rauninni var hún frekar alvörugefin, klaufaleg í hreyfingum og óörugg með sig. Hún vissi ekki bara nöfn allra Englands- konunga heldur drottninganna líka og gat rakið 30 ára stríðið afturábak, en hún var feimin við að dansa fyrir framan aðra og hefði aldrei getað staðið uppi í vinnutröppu eins og Bett lagði á sig að gera. Öðrum megin við húsið stóðu sítrustré í röð en járnbrautarteinarnir lágu hinum megin. Lestaumferðin hafði aldrei verið mikil og núna fóru aðeins um það bil tvær lestir þarna í gegn á mánuði. Illgresið dafnaði í kringum teinana. Einu sinni þegar Nita var að nálgast breytingaskeiðið hafði hún
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.