Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.12.2013, Síða 91

Tímarit Máls og menningar - 01.12.2013, Síða 91
N o r ð u r - K ó r e a : Í u n a ð s b a ð i h i n n a r f ö ð u r l e g u e l s k u TMM 2013 · 4 91 til af kjöti – þegar við eigum ekki mat handa fólkinu, þá er augljóslega enn minna til fyrir skepnurnar.“ Barbara Demick bregður upp glöggri mynd af ástandinu í afar for- vitnilegri bók sinni, Engan þarf að öfunda: Á allri um það bil 40 km langri leiðinni frá Pyongyang til Nampo sást í hvaða mæli Norður-Kóreubúar voru látnir taka þátt í öflun matvæla. Miðaldra skrifstofukonur voru látnar þramma út í sveit með skóflu á öxlinni. Við vegabrúnirnar kraup gamalt fólk og leitaði að einhverju ætilegu í grasinu. Sveitahéruðin önguðu af því sem kom úr næturgögnum þjóðarinnar og enn var notað sem áburður. Árið áður dró verulega úr áburðargjöfum frá Suður-Kóreu vegna þess hve samskipti ríkjanna voru pólitískt viðkvæm. Nokkur vélbúin landbúnaðartæki voru á ökrunum, trukkar sem jusu úr sér útblæstri eins og þeir brenndu viði og maískólfum í stað bensíns. Fólk bar stóra sekki á bakinu og gekk lotið meðfram ryðguðum brautarteinum sem greinilega höfðu ekki verið í notkun árum saman. Til viðbótar þessu var stöðugt rafmagnsleysi. Sporvagnarnir stóðu kyrrir á myrkum götunum, fullir af fólki sem beið þess þolinmótt að rafmagnið kæmi á aftur. Í miðborg Pyongyang sá maður fólk bera vatnsfötur inn í 10–12 hæða íbúðablokkir þar sem lyfturnar sváfu í rafmagnsleysinu. Sam- starfsmaður okkar einn sagði frá því einn daginn í hálfum hljóðum að það hefði verið fimm stiga frost í íbúðinni hans þá um nóttina. Það var aðeins hlýtt í öðrum tveggja turna Koryo hótelsins í Pyongyang – hinn var myrkur og kaldur. „Þetta er hús“ Líta verður á söguna og samhengið til að skilja hversu nú er ástatt um alþýðulýðveldið. Eins og fyrr er nefnt var Kórea öll íhaldssamt bænda- samfélag allt fram á síðari hluta 19. aldar. Frá 1392 og allt til 1910 var við völd ein og sama keisaraættin, Choson, sem aðhylltist konfúsíanisma. Samkvæmt útleggingu keisaraættarinnar byggðist samfélagið á fimm mis- munandi, en þó náskyldum, tengslum fólks: höfðingi/þegnar, faðir/sonur; eldri bróðir/yngri bróðir, eiginmaður/eiginkona og vinur/vinur. Samskipti þar fyrir utan byggðust á félagsstöðu, fjölskyldutengslum, landfræðilegum uppruna, menntun og skólavináttu (sem einnig hljómar kunnuglega í eyrum Íslendinga). Útlendingar áttu hvergi heima í þessari heimsmynd konfúsíanismans. Landfræðileg einangrun landsins sá að vísu til þess að fáir útlendingar komu, nema þá sjaldan að einhverjir grannanna reyndu að leggja skagann undir sig, og það ýtti mjög undir útlendingaótta í landinu. Litið var á kristni sem hættulega villutrú. Sögur herma þó að skipreika útlendingar hafi fengið góðan aðbúnað – uns hægt var að koma þeim úr landi aftur. Í stuttu máli sagt: Kórea hafði enga reynslu af því að taka á móti
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132
Síða 133
Síða 134
Síða 135
Síða 136
Síða 137
Síða 138
Síða 139
Síða 140
Síða 141
Síða 142
Síða 143
Síða 144
Síða 145
Síða 146
Síða 147
Síða 148
Síða 149
Síða 150
Síða 151
Síða 152
Síða 153
Síða 154
Síða 155
Síða 156
Síða 157
Síða 158
Síða 159

x

Tímarit Máls og menningar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.