Tímarit Máls og menningar - 01.12.2016, Side 112
S i g r í ð u r A l b e r t s d ó t t i r
112 TMM 2016 · 4
nema land. Ég pældi gífurlega í þessu, ekki bara með lestri goðsögufræða,
fyrir nú utan Landnámu, heldur fóru ýmsar vangaveltur í gang, skylda
skáldsins að koma draumvirkninni af stað.
Út úr þessu kom algjör fullvissa sem tengdist landnámi Íslands og
„íslenska undrinu“, þ.e. af hverju skrifuðum við á 12. og 13. öld ótrúlega hluti
að magni og gæðum, Norðmenn ekkert, Norðurlandamenn næstum ekki
neitt … og samt eigum við að vera komnir af þeim!
Fullvissan, draumkennd, óvísindaleg en sönn samt. Einn lykillinn að
útskýringu á íslenska undrinu er sú staðreynd að við erum blanda frá upp-
hafi: Norðurlandamenn, aðallega karlmennirnir, konurnar keltneskar, frá
Írlandi og eyjunum.
Enginn tók mark á þessari ljóðrænu fullvissu minni, menn héldu flestir að
ég væri að grínast. Jónas vinur minn Kristjánsson, handritafræðingur, sagði
eitt sinn við mig eftir að ég hafði haldið enn einn fyrirlesturinn um þetta
mál: „Jæja Sigurður minn, það er alltaf sama Írafárið á þér!“
Hvað kom svo í ljós hjá Kára Stefáns og félögum? Íslenskir karlmenn eru
komnir 60% af Norðmönnum o.fl. Norðlendingum, 80% kvenfólksins komið
frá keltnesku svæðunum! Þetta er, furðulegt nokk, greinanlegt hjá Erfða-
greiningunni. Ég hafði semsagt rétt fyrir mér! Ég bjóst vitanlega aldrei við
því að þessa intuition, hugboð, sem var algjör fullvissa, yrði hægt að sanna
vísindalega.
Nú, ég er Skaftfellingur í föðurætt eins langt og rakið verður. Ég sá í
áróðursritinu Landnámu að forfaðir minn, sá er nam land í Skaftafells-
sýslum var ÍRI!! Það stendur þar. Enginn fjandans þræll, bara frjáls maður.
Og hvað hét hann? Ketill fíflski. Af hverju? Norræningjafávitarnir kölluðu
hann þetta af því að hann var kristinn! Ketill the Idiot! Forfaðir minn! Ég er
stoltur. Segist gjarnan vera írskur í föðurætt. Vissi ekki hve ótrúlega nærri
sannleikanum það er í raun.
Semsagt. Þetta er allt um keltnesku ættmóður okkar allra. Knúið áfram af
sterkri tilfinningu fyrir þessari konu sem hefur verið afneitað allan þennan
tíma, alltaf reynt að slíta okkar keltneska þráð. Þagga niður konuna í tvö-
faldri merkingu.
Skylda skáldsins að koma draumvirkninni af stað. Geturðu útskýrt þá
skyldu nánar?
Hugtakið draumvirkni er hjemmelavet þýðing mín á hugtakinu „travail
du rêve“ hjá Freud, sem stundum er kallað „élaboration du rêve“ og ég sé að
Sigurjón Björnsson hefur þýtt draumvinnsla15. Mig rámar í að þegar ég las
þetta sirka 1969, þá hafi ég hugsað sem svo, að rithöfundar og ljóðskáld alveg
sérstaklega skapi á svipaðan hátt og Sigmund Freud lýsir virkni draumsins
hjá dreymandanum.
En í þessu samhengi landnáms, upphafs þjóðar o.s.frv. – þá er mikilvægt
að átta sig á því að hægt er að hugsa um þjóð og sögu hennar sem einstakling