Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1939, Qupperneq 125
123
síöðum, íneðíil annars í sölubúð Sláturfélags Suðurlands hér í kaup-
túninu. Bændur í hinum 3 hreppum hcraðsins, Skilmannahreppi,
Mela- og Leirárhdeppi og Strandarhreppi, selja mjólk sína til
Heykjavíkur.
Flateyjar. Flestir heimilisfeður í Flatey eiga kýr, og er því næg
mjólk mikinn hluta árs. Aftur eru vandræði með sumarbeit kúa, því
að landrými er svo lítið á eyjunni. Stendur því í stappi milli þurra-
húðarmanna og bænda um kýrnar. Vilja bændur gera allar kýr út-
lægar af eyjunni nema sínar, en ef svo yrði, yrði hér undir eins til-
finnanlegur mjólkurskortur að sumrinu, þvi að kýr bænda mundu
ekki nægja, enda þurrabúðarmenn ekki svo efnum búnir, að þeir
gætu keypt mjólk yfir sumarið, þótt fáanleg væri.
Ríldudals. í sveitum hafa allir nægilega mjólk, og nokkuð er þar
um smjörgerð, en lítið um skyr. En hér í kauptúninu er mjólk af
skornum skammti. Nokkrir menn eiga þó kýr hér, og dálítið er flutt
að af mjólk af næstu bæjum. Meðferð mjólkur virðist viðunandi.
Ögnr. Mjólkurframleiðsla er mikil í sveitunum, en mun fara heldur
minnkandi. Yfirleitt mun hreinlega gengið um fjós, enda sérstök
áherzla lögð á g'óðár fjósbyggingar og kamra á þeim heimilum, sem
framleiða mjólk til sölu.
Blönduós. Mjólkurframleiðsla er vaxandi og' mjólkurneyzla, enda
er nú talsvert borðað af skyri, en framleiðsla þess var orðin mjög lítil,
eftir að fráfærurnar lögðust niður í byrjun aldarinnar. IJm mjólkur-
sölu er varla að ræða, nema mjög lítils háttar af einstaka hæ næst
kauptúnunum.
Sauðárkróks. Margir hafa næga mjólk fyrir sitt heimili oftast nær,
en næga mjólk má einnig fá i mjólkursamlaginu, sem einnig selur
skyr og' osta og aðrar mjólkurafurðir, er þykja ágætar. Nokkrir kaup-
staðarbúar selja eitthvað af mjólk, að minnsta kosti við og' við.
Mjólkursala utan kaupstaðarins er eingöngu á vegum mjólkursam-
lagsins.
Óhdfsfj. Kúafjöldi mun vera svipaður hér í kauptúninu og verið
hefur. En dýr mun sú mjólkurframleiðsla vera. Er um töluverða
mjólkursölu að ræða til kauptúnsins frá næstu bæjum. Lítrinn hefnr
verið seldur á 35 aura og nú jafnvel á 40. A sumrin flytzt hingað tölu-
''erð mjólk frá mjólkursamlagi KEA.
Svarfdæla. Mikil framleiðsla i Svarfaðardal og á Árskógsströnd og
megnið flutt í Mjólkursamlagið á Akureyri, en talsvert selt í mjólkur-
búð útibúsins á Dalvík, samhellingur, ógerilsneyddur. Einnig tals-
verð sala heimila á milli á Dalvik og í Hrísey. Meðferð mjólkur mun
hér yfirleitt vera hvorki verri né betri en gengur og gerist.
Höfðahverfis. Seld er mjólk til Akureyrar eins og áður frá 26 heim-
ihun 5—6 mánuði úr árinu, hina mánuðina framleitt smjör og skyr.
blestir heimilisfeður hér á Grenivík hafa 1—2 kýr, svo að þeir hafa
nokkurn veginn nóg' til heimilisþarfa. Mjólkurverð hefur verið ca. 17
aurar lítrinn til bænda.
Öxarfj. Hér er ekki framleidd mjólk til sölu.
Þistilfj. Mjólk næg hér í Þórshöfn og hinum kauptúnunum líka,
nema á haustin áður en kýr bera almennt. Minnst af henni á Skálum,