Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1943, Blaðsíða 9
7
að siðara hluta sumars fór setuliðið að kippa að sér hendinni með
vinnu og yfirgaf svo að mestu bæinn í september.
Norðfj. Mönnum vegnar yfirleitt vel. Allir hafa nægiiegt fé handa
í milli, og' er dagleg't líf manna eftir því. Almenningur þarf ekki að
neita sér um neitt í mat, drykk né klæðnaði og' gerir ekki heldur.
Margir laga líka í kringum sig í híbýlum sínum.
Hornafi. Almenn afkoma góð, þótt gæftir væru stirðar á vetrar-
vertíð og afli því fyrir neðan meðallag.
Siðu. Menn hafa nii safnað innstæðum í stað skulda áður.
Vestmannaeyja. Útvegurinn gengið viðunandi vel, landvinna sæmi-
lega stöðug og fjárhagur talinn góður, þó að helztu nauðsynjar væru
óhóflega dýrar. Vinnufæru fólki ekki vorkennandi. Þeir, sem búnir
voru að slíta kröftum, áður en þessi ógnaralda skall yfir landið, eiga
margir um sárt að binda, því að háa kaupið rennur ekki til þeirra,
sem óvinnufærir eru.
Eijrarbakka. Þrátt fyrir mjög hátt kaupgjald hefur afkoma bænda
vafalaust verið með ágætum. Flestir munu hafa greitt skuldir sínar að
l'ullu, aðrir að mestu og margir safnað álitlegri peningaeign í bönk-
uin og sparisjóðum. Afurðaverðið hefur verið firna hátt. Setuliðs-
vinnan fjaraði út fyrra part ársins og' mun endanlega lokið. Eigi að
síður bar ekkert á atvinnuleysi hér um slóðir. Kvenfólk reyndist lítt
eða ekki fáanlegt til heimilisstarfa, hvað sem í boði var.
Grimsnes. Þrátt fyrir harðan vetur, stuttan heyskapartíma og
haupafólkseklu þetta ár er afkoma almennings góð, og er það að þakka
hinu háa afurðaverði.
Keflavíkur. Vetrarvertíð í betra lagi.
II. Fólksfjöldi, barnkoma og manndauði.1)
Fólksfjöldinn á öllu landinu í árslok 1943 var 125967 (123996 í árs-
lok 1942). Meðalfólksfjöldi samkvæmt því 124982 (123191 ).2)
Lifandi fæddust 3170 (3024) börn, eða 25,4%„ (24,5f4).
Andvana fæddust 64 (77) börn, eða 19,8%0 (24,8%0) fæddra.
Manndauði á öllu landinu 1268 (1293) menn, eða 10,l%o (10,5%c).
/í 1. ári dóu 96 (156) börn, eða 30,3%o (51,6%0) lifandi fæddra.
Hjónavigslur 982 (1076), eða 7,9%„ (8J%0).
1 Reykjavik var mannfjöldinn í árslok 42815 (40902).
Dánarorsakir eru samlcvæmt dánarskýrslum, sem hér segir:
Farsóttir:
Kverkabólga (angina tonsillaris) ................................ 1
Kvefsótt (catarrhus respiratorius acutus) ........................ 3
Barnaveiki (diphtheria) ......................................... 2
Barnsfararsótt (febris puerperalis) .............................. 3
1) Eftir upplýsingum hagstofunnar.
2) Um fólksfjölda í einstökum héruöum sjá töflu I.