Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1943, Page 24
22
Landsspítalans, fékk hita á 9. degi eftir fæðingu og phlebitis í vinstra
ganglim. Lá rúina 2 mánuði. Loks má geta um 38 ára stúlku, sem dó
skyndilega í fæðingardeild Landsspítalans úr embolia pulmonuin, 19
dögum eftir erfiða fæðingu.
Borgarnes. 1 kona. Erfið fyrsta fæðing, sem þó gekk án annarrar
hjálpar en pitúitríns. Fékk prontosíl í æð í stórum skömmtum, en
hafði áfram lágan hita. Blæðing' hafði ekki verið óeðlilega mikil við
fæðinguna, en nú var hún orðin blóðlaus. Stúlkan var unnusta
amerísks setuliðsmanns, og varð það að ráði, að hún var tekin á
ameríska herspítalann hér. Fékk hún þar 2svar blóðgjafir frá félög-
um mannsins og hresstist við upp úr því. Auk þess fékk kona uppi í
sveit greinilega barnsfararsótt. Engin exploration eftir að himnur
sprungu, aðeins einu sinni fyrr pitúitrín og svæfing. 3 spangarsaumar.
Hiti á öðrum sólarhring, var nokkuð þrálátur, en batnaði loksins eftir
mikið súlfanilamíðát. Enn var kona, sem mun hafa fengið létta
harnsfararsótt: fékk nokkurn hita, en batnaði strax við súlfanilamíð.
Flateyrar. Kona fæddi á örskömmum tíina, fékk paralysis vesicae
og á 3. degi hreinsunarstíflu og háan hita, sem stóð tæpa 2 sólar-
hringa. Henni batnaði fljótt og vel af prontosíl-ergometrínmeðferð.
Primipara, sem fékk Bartholinitis seinna hluta meðgöngutímans og
hafði slæman fluor úr því, gekk mjög illa að fæða stórt barn, fékk all-
mikla spangarsprungu, sem var saumuð. Hún fékk háan hita á 2.
sólarhring, hafði hita á aðra vilcu, batnaði til fulls af prontosil. Af
vangá er hvorug þessara kvenna á mánaðarskrá.
Reykjarfí. Aldrei getið um barnsfararsótt, en er ekki grunlaus um,
að slíkt hafi komið fyrir, þó að á lágu stigi hafi verið. Lítið gert hér
að því að mæla hita í sængurkonum.
Sauðárkrólcs. Primipara fékk endometritis puerperalis með blæð-
ingum eftir eðlilega fæðingu. Batnaði við prontosíl.
Ólafsfí. Konu með barnsfararsótt batnaði fljótlega við prontosíl.
Lagðist aftur nokkru síðar í pyelonephritis vinstra megin. Eggjahvíta
og gröftur í þvagi hurfu alls ekki, enda reyndist síðar vera steinar í
nýranu og gröftur og var tekið.
Svarfdæla. 2 fjölbyrjur veiktust eftir eðlilega fæðingu. Lifðu báðar.
Fljótsdals. Kona á Jökuldal fékk snert af barnsfararsótt. Ekki hafði
náðst í ljósmóður í tæka tíð. Konan átti tvíbura, stóð talsvert á seinna
barninu, en mikil blæðing orðið í millitíð. Henni batnaði fljótt, en
fékk hins vegar slæma mastitis.
Hornafí. Utanhéraðskona úr Álftafirði.
Keflavikur. 3 konur fengu barnsfararsótt, en eng'in veiktist hættu-
lega. Notað prontosil við þær allar. Tilefni gal vcrið í eitt skipti, að
sækja þurfti fylgju með hendi. Hinar fæðingarnar að mestu eðlilegar.
6. Gigtsótt (febris rheumatica).
Töflur II, III og IV, 6.
S júklingafíöldi 1934—1943:
1934 1935 1936 1937 1938 1939 1940 1941 1942
147 160 91 97 105 79 75 85 117
1 2 2 1 1 „ 1
Sjúkl.
Dánir
1943
95
1