Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1943, Síða 25
23
Læknar láta þessa getið:
Bildudals. Vítamíngjöf virðist gera talsvert gagn við þessum kvilla.
Fljótsdals. 2 piltar innan tvítugs urðu mikið veikir. Annar þeirra
fékk endocarditis, sem hafði í för með sér dálítinn lokugalla.
Fáskrúðsfj. Gerir yfirleitt lítið ’vart við sig. 1 tilfelli skráð, all-
svæsið.
Vestmannaeyja. Mjög illkynja tiJfelIi á telpu 6 ára, sem dó úr veik-
inni.
7. Taugaveiki (febris typhoidea).
Töflur II, III og IV, 7.
S júklingafjöldi 1934—1943:
1934 1935 1936 1937 1938 1939 1940 1941 1942 1943
Sjúkl........ 19 24 9 20 3 fi 3 4 5
Dánir ....... „ 1 „ 2 „ 1 „ „ „ • „
Þetta er sögulegt ár að því leyti, að enginn er skráður með tauga-
veiki, og' því heldur sem telja má nokkurn veginn víst, að enginn
liafi veikzt af taugaveiki á árinu. Hefur slíkt ekki komið fyrir, síðan
tekið var að skrá farsóttir reglulega, og má hafa fyrir satt, að landið
úafi ekki áður verið taugaveikislaust í heilt ár, síðan sögur hófust.
Þvi miður mun þó ekki því vera að heilsa, að taugaveiki sé upprætt
í landinu. Mun enn lifa hér og' þar í kolum smitbera, en vist vantar
ekki nema lítinn herzlumun til að losna að fullu við þenna smánar-
lega kvilla.
Læknar láta þessa getið:
Borgarnes. Hefur víst ekki komið hér fyrir í mörg ár.
ísafj. Öldruð kona, smitberi, dvelur á sjúkrahúsi Isafjarðar.
Ögur. Heimilisfólk á Fremra-Bakka í Langadal var sjálft látið sótt-
hreinsa eftir taugaveikina, er þar gekk fyrir og um áramótin. Setti
ég' því fyrirmæli, sem það mun hafa fylgt út í æsar. Tvisvar var saur
og þvag sent þaðan til Rannsóknarstofu Háskólans. Fannst ekkert.
I ajiril dó þar gömul kona, K. B.-dóttir, á níræðisaldri, og' gæti ég
trúað, að hún hafi verið sýkilberi. Ég er nokkurn veginn viss um, að
hún hefur verið með gallsteina eða gallteppu (cholangitis). Á eftir
dauða hennar fór sótthreinsun fram.
Blönduós. Hefur ekki orðið vart nú um nokkurt árabil, en 1 smit-
beri er í héraðinu, einangraður sæmilega.
Ólafsfj. Ekki vitað um smitbera.
Svarfdæla. Enginn smitberi, svo að vitað sé.
Fljótsdals. Aldrei orðið vart, síðan ég kom í Fljótsdalshérað 1926.
Vestmannaeyja. Ekki gert vart við sig, síðan sóttberinn (). B,-
dóttir dó.
Grimsnes. Varð ekki vart.
Kelfavikur. Verður ekki vart. Um einn smitbera er vitað, roskinn
mann, en ekki komið að sök.