Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1943, Side 26
24
8. Iðrakvef (gastroenteritis acuta).
Töflur II, III og IV, 8.
Sjúklingafjöldi 1934—1943:
1934 1935 1936 1937 1938 1939 1940 1941 1942 1943
Sjúkl......... 1585 1790 1740 1035 1961 2990 5266 2395 4657 2753
Dánir ........ 1 „ 2 „ 4 3 7 6 9 5
Iðrakvefsár í meðallagi, og bar miklu minna á þeim kvilla en árið
fyrir. Langoftast enginn faraldur, þó að skráð sé sem farsótt, heldur
livers konar þunnlífi fyrir matarbrigði og annað. Þó hefur smáfar-
aldra gætt á stöku stað, er sums staðar lögðust einkum á börn.
Læknar láta þessa getið:
Rvík. Miklu minna kvað að iðrakvefi en næsta ár á undan og var
ekki líkt því eins illkynjað.
Hafnarfj. Gerði vart við sig alla mánuði ársins nema í nóvember.
Skipaskaga. Stungið sér niður allt árið.
Borgarfj. 1 barn dó, 2 ára, nýkomið í sveitina úr Reykjavík. Annars
minna um þessa farsótt en oft áður.
Hóls. Lítillega bar á bráðri garnabólgu í börnum.
ísafj. Aðallega haustmánuðina,
Blönduós. Dálítið um haustið, en annars með minnsta móti.
Sauðárkróks. Gerir nokkuð vart við sig alla mánuði ársins, en eng-
inn verulegur faraldur.
Hofsós. Örfá tilfelli.
Ólafsfj. Einstök dreifð tilfelli.
Svarfdæla. Stakk sér niður við og við.
Höfðahverfis. Fá dreifð tilfelli.
Reykdæla. Veikin létt, lagðist aðallega á börn.
Þistilfj. Nokkur dreifð tilfelli síðara hluta árs.
Vopnafj. Gerði mjög lítið vart við sig'. Það ber að athuga, að fólk
leitar ekki læknis, nema um áberandi iðrakvef sé að ræða, og látin
jeru í té stoppandi lyf, án þes að læknir hafi sjúklinginn séð. Koma
því ekki hér öll kurl til grafar. Hins vegar er því ekki að neita, að
mataræði er yfirleitt jafnara og betra en áður var, og oféta menn sig
því síður en áður gerðist. Sérstaklega virðist fólk gæta meira hófs
í sláturtíð og um stórhátíðir, en slíkt var alltítt áður, að menn
fengju ræpu af nýmetinu í sláturtíð og' af þungum hátíðamat.
Fljótsdals. Mikið bar á þessum kvilla, sérstaklega sumar- og haust-
mánuðina, sem verulegum faraldri með háum hita, 39° og þar yfir.
Við þessu reyndist mér bezt bismuthi subgallas.
Segðisfj. Talsvert áberandi-siðara hluta sumars.
Norðfj. Enginn faraldur.
Fáskrúðsfj. Oft þrálát og áköf sótt.
Vestmannaeyja. Áberandi ineð köflum, einkum í börnum 1 til 10
ára. Á haustin eru oft rnest brögð að þessum kvilla í sláturtíðinni.
Grimsnes. Fáein tilfelli, öll væg.
Keflavíkur. Talsverð brögð að faraldri þessum, einkum i Keflavík,
og gekk hann þar eins og regluleg farsótt á tímabili.