Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1943, Qupperneq 27
25
9. Inflúenza.
Töflur II, III og IV, <J.
Sjúklingafíöldi 1934—1943:
1934 1935 1936 1937 1938 1939 1940 1941 1942 1943
Sjúkl..... 670 11229 212 21977 1301 5326 157 9670 625 12969
Dánir .... 6 23 5 87 „ 27 2 38 2 36
Gengur í tveimur aðgreindum faröldrum og báðir að heita um allt
land, hinn fyrri um vorið, aðallega í marz og apríl, en hinn síðari
fyrra hluta vetrar, í nóvember og desember. Faraldrana telja læknar
væga, einkum hinn fyrra, en manndauði var þó ekki óverulegur, eftir
því sem gerist um væga inflúenzu (2,8%0 skráðra). Árið 1935 voru t. d.
álika margir skráðir með inflúenzu og veikin talin með þvngra móti,
en manndauðinn þó talsvert minni (2,0%t. skráðra).
Læknar láta þessa getið:
Rvik. 2 faraldrar af vægri inflúenzu gengu á árinu. Sá fyrri í marz
og apríl, en sá síðari í nóvember og desember, og var hann nokkru
þyngri, svo að ástæða var talin til að loka harnaskólum um stundar-
sakir seint í nóvember til að tefja útbreiðslu veikinnar, enda mætti
þá ekki orðið nema rúmur helmingur nemenda.
Hafnarfí. Gekk hér sem illkynjuð farsótt bæði um vorið og haustið,
og dó 1 sjúklingur af hennar völdum. Margir le'ngi slappir eftir á.
Skipaskaga. Gekk tvisvar á árinu, um vorið og haustið.
Borgarfí. Stakk sér niður í aprílmánuði, en varð stöðvuð, áður en
hún breiddist verulega út. Annar faraldur í nóv.—des., allþungur,
sýkti marga. 1 gamalmenni dó, karlægur asthmasjúklingur.
Borgarnes. Gekk tvisvar á árinu, í marz og' í nóvember. Bæði skiptin
a?ddi hún yfir með feikna hraða, tók fólk með miklum hita og
eatarrhalia. Þeir, sem gátu veitt sér að liggja 3—5 daga, náðu sér flestir
fljótlega aftur. Meðgöngutími (ég sjálfur og fleiri) 2 sólarhringar. Fá
filfelli af reglulegri pneumonia catharralis í fyrra skiptið, en þó
minnist ég eins sjúklings (ekki á skrá), og 2 tilfelli í desember voru
heint úr flenzunni ættuð.
Dala. Barst hingað í héraðið með manni úr Haukadalshreppi, sem
kom sunnan úr Reykjavík síðara hluta marzmánaðar. Barst um
Haukadalinn og á nokkra bæi í Laxárdal og Miðdölum. Væg, þó fengu
suinir nokkuð háan liita í 1—2 dag'a og voru slappir á eftir. Fvlgi-
kvillar: Lungnabólga 2 og eyrnabólga 1.
Patreksfí. Var væg, en gekk hratt yfir.
Bíldudals. Barst frá Reykjavík í febrúarmánuði, breiddist óðfluga
út, svo að heilu heimilin hrúguðust í rúmin á svipstundu, og virtist
mjög næm. Skóla sjálflokað, því að kennarar og flest börnin lögðust
i einu. Eftirköst ekki alvarleg.
Þingeyrar. Síðara hluta vetrar og að vorinu gekk inflúenza víða um
land, einnig hér á næstu fjörðum. Voru teknar upp sóttvarnir, og tókst
þannig að losna við þann faraldur. Síðustu mánuði ársins barst annar
faraldur inn í héraðið öllum að óvörum. Sóttvörn því óframkvæman-
4