Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1943, Síða 29
27
ilisfólk samtímis. Af rúmlega 90 nemfendum í Laugaskóla lágu 70
sanitímis. 2 gamalmenni dóu af afleiðingum inflúenzunnar.
Þistilfí. G,ekk vor og haust.
Vopnafí. Allþung kvefpest, sem líktist inflúenzu, gekk hér í lok árs-
ins og fór víða um. Fengu flestir sjúklingar háan hita, 39—40°, sem
stóð í 2—3 daga og' stundum lengur, höfuðverk, beinverki, blóðnasir
°g tak í kviðinn. Aldrað fólk varð hart úti og fékk upp úr inflúenz-
unni lungnakvef, auk þess sem nokkrir sjúklinganna fengu kvef-
iungnabóígu. 1 háöldruð kona dó af afleiðingum inflúenzunnar eftir
ianga legu.
Fljótsdals. Barst með sýslunefndarmönnum frá Seyðisfirði, kom á
ö bæi, og veiktust einungis þeir, sem ekki höfðu veikzt í faraldrin-
um 1939.
Seyðisfí. Barst hingað síðast i marz með e.s. Lagarfossi frá Reykja-
'ík. Greinilegur inflúenzufaraldur, algerlega ólikur hinni sífelldu
kvefpest. Sóttin væg, nokkuð hár hiti í 2—3 daga með höfuðverk og
beinverkjum, engir fylgikvillar. Gekk yfir á rúmum mánuði.
Norðfí. Nokkrir sjúklingar í apríl—maí og í desember. Alltaf sama
sagan um aðgreining frá kvefsótt.
Fáskrúðsff. Barst hingað í marzmánuði, iagðist allþungt á menn,
cinkum eldra fólk. Þó var lítið um fylgikvilla.
Síðn. Gekk hér í nóvember og desember. Aðeins skráður nokkur
hluti þeirra, sem fengu sóttina. 3 dóu af afleiðingum hennar, 54 ára
niaður með sykursýki á háu stigi og hafði auk þess fengið apoplexia
cerebri, 99 ára ellihrum kona og 57 ára gamall maður, „brjóstþungur".
Mýrdals. Barst í héraðið í nóvember og gekk eins og logi yfir akur,
allþung. Nokkuð bar á fylgikvillum, svo sem otitis. 6 sjúklingar fengu
lungnabólgu, þar af 4 bræður á sama bæ, hver á eftir öðrum, og einn
meira að segja tvisvar.
Vestmannaeyja. Barst hingað snemma í marz og fór fljótt yfir, því
að hún tók menn ört, einkum aðkomufólk. Gerði veikin aftur vart
við sig í nóvember og einkum í desember, en fór ekki ört yfir, svo að
iremur lítil brögð urðu að henni hér, enda veikin hér, einkum í haust,
yfirleitt væg. t vetrarfaraldrinum bar á lungnabólgu upp úr henni og'
eyrnabólgu á sumum, og' kvörtuðu ýmsir yfir, að þeir hefðu verið
seinir að ná sér til fulls. Veikin barst hingað með fólki úr Reykjavik.
Eyrarbakka. Sóttaröldur 2 á árinu. Hin fyrri hófst eftir miðjan
marzmánuð. Barst úr Reykjavík. Snemma i nóvember hófst hin síðari
aldan. Enginn, sem tók veikina hið fyrra sinnið, veiktist að nýju í
síðara faraldrinum.
Grímsnes. 2 faraldrar á árinu, hinn fyrri í marz og apríl, en hinn
síðari í nóvember og desember. Var hinn síðar nefndi öllu ákveðnari,
lók á sumurn bæjum allt heimilisfólkið í einu, svo að fólk af öðrum
bæjum varð að gegna skepnunum. í Hrunamannahreppi, þar sem
fyrri faraldurinn gekk aðallega, kom sá síðari ekki. í Laugarvatns-
skóla lágu samtímis um 100 manns í nóvemberfaraldrinum. Fylgi-
kvillar voru helztir bronchitis og lungnabólga.
Keflavikur. Gengur í marz. Lagðist allþungt á suina, einkum eldra
fólk.