Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1943, Blaðsíða 31
29
ist það yfirleitt vel, virtist þó í nokkrum tilfellum ekki hafa nein
áhrif, en slíkar undantekningar komu elcki fyrir 1936.
Borgarnes. Bárust í héraðið í apríl. Pneumonia catarrhalis á sama
tíma á til mislinganna að telja að mestu. Strax þegar mislinganna
varð vart, var leitað eftir að fá mislingaserum. Fékkst það um miðjan
maí, og voru 143 manneskjur sprautaðar með því, í maí—júní næst-
um allir. Virtist koma að miklu gagni, og var sérstaklega áberandi,
livað sumir fullorðnir veiktust lélt, eftir að hafa smitazt oftast á 5.—8.
degi frá sprautun. í sumum tilfellum virtist sprautan hafa tafið mjög
íyrir, að sjúkdómurinn kæmi fram, talið, að meðgöngutíminn lengdist
allt upp í 3 vikur í sumum tilfellum. Það gengur alltaf svo úti um
sveitir, að margir sleppa við sóttina í hverjum mislingafaraldri, en
lenda svo í henni seinna. T. d. eru hér í þetta sinn tæp 25% á „misl-
ingaaldri". Auk þeirra, sem taldir eru á skýrslum, veit ég um hjón á
afskekktum bæ, sem fengu mislinga nú, og eru bæði um sjötugt.
Urðu allmikið veik, en batnaði báðum vel.
Dala. Um 40 manns á ýmsum aldri fengu mislingareconvalescent-
serum profylaktiskt, en lítið verður sagt um árangurinn, því að fæstir
þeirra höfðu smitazt eða komust i smithættu síðar. Mislingar bárust
nieð fólki, sem kom að eftir lengri eða skemmri dvöl í Reykjavík eða
annars staðar, t. d. 2 frá Reykholti. Máttu heita vægir, nema helzt á
þeim eldri, og' fengu 5 lungnabólgu.
Patreksfi. Bárust hingað í maíbyrjun og gengu til júlíloka. Öll börn
fram að fermingaraldri höfðu verið bólusett gegn mislingum, bæði
hér á Patreksfirði og í Tálknafirði. Ekki virtist þetta hafa nein áhrif
á útbreiðslu veikinnar, en hún var alls staðar væg og' án fylgikvilla,
hvort sem það hefur verið aðgerðinni að þakka. 1 barn dó af afleið-
ingum veikinnar, og var það á því svæði, sem ekki var bólusett á.
Þingeyrar. Mislingar hófu göng'u sína um héraðið með vorinu.
Veiktust fjölda margir, og, að ég hygg, því nær allir, sem móttæki-
legir voru. Voru margir á öllum aldri, sem eigi höfðu fengið mislinga.
Hinir eldri urðu verst úti. 2 konur um sextugt urðu alvarlega veikar
og eru veiklaðar eftir. Voru þó báðar sprautaðar með serum. Blóð-
vatnslækningar voru mikið notaðar og virtust bera mjög góðan ár-
angur. 1 stúlka 18 ára með tb. pulm. veiktist, áður en blóðvatn var
komið. Varð hún hart liti og virtist nálega dauðvona. Hjarnaði þó
við aftur, og furðu lítið virtust lungnaskemmdir hafa ágerzt. Síðar
kom í ljós spondylitis tuberculosa. Liggur hún nú hér í sjúkrahúsinu.
Flateyrar. Mislingar gengu frá rnaí til ágúst fremur léttir; fylgi-
kvillar fáir. 2 börn fengu lungnabólgu, 5 otitis media. Batnaði öll-
um vel.
Hóls. Mislingar voru býsna lengi á ferðinni í héraðinu. Sjiikdómur-
inn vægur og engir fylgikvillar. Enginn dó.
ísafi. Fyrst veiktist 16 ára stúlka í Hnifsdal, nýkomin frá Reykja-
vík, og hér í kaupstaðnunr varð fyrsta tilfellið rakið til pilts, sem
kom frá Reykjavík. Hann dvaldist hér í bænum í 8 daga og fór svo
inn í Djúp og lagðist, um leið og hann kom inn eftir. Veikin var væg
á börnum, en allþung á fullorðnum. Reconvalescentblóðvatn var feng-
ið handa veikluðu fólki, sérstaklega berklaveiku, með góðum árangri.