Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1943, Blaðsíða 33
31
þeim nokkrir menn í læknishéraðinu. Notað var nokkuð mikið
reconvalescentserum, bæði til að fyrirbyggja sjúkdóminn og til lækn-
inga, einkum á fólki, sem baldið var öðrum sjúkdómum, og fannst
mér árangur þessara lækninga í mörgum tilfellum ágætur.
Höfðahverfis. Mislingar bárust hingað frá Reykjavík í byrjun maí-
mánaðar, en breiddust ekkert út. Bárust þeir með stúlku, er kom frá
Reykjavík. Smitaði hún heima hjá sér og stúlku, er var henni sam-
skipa frá Akureyri. Aftur bárust þeir hingað síðast í maímánuði á
2 sveitaheimili með pilti, er kom frá Akureyri, og enn með töku-
barni frá Akureyri. Smitaði það heimilisfólkið, en ekki breiddist veik-
in út frá þvi. Margt er hér enn miðaldra og eldra fólks, sem hefur
ekki fengið mislinga, og virtist mér það mjög ógjarna vilja fá þá.
Yfirleitt fóru þeir, er mislinga fengu, vel vit úr þeim. Maður um fimmt-
ngt varð þó mjög þungt haldinn, og var lengi sumars að ná sér. Tii
mín kom maður um miðjan jiilí, sem fengið hafði mislingaserum
lyrir 5 vikum, var hálf slappur og reyndist hann vera með mislinga.
G(af ég honum góðan serumskammt. Hafði hann komið á annan hvern
bæ hér í hverfinu, svo að ég bjóst við, að hann hefði smitað mikinn
hluta sveitarinnar. Þetta reyndist þó ekki svo, því að hann smitaði
hvergi. Maðurinn var orðinn allur útsteyptur af mislingum, 2 dögum
eftir að ég sá hann.
Reykdæla. Bárust inn í héraðið, en tókst að stöðva þá. Æði mikið
Var gefið af serum til varnar.
Þistilfj. Bárust hingað með bifreiðarstjóra, sem hafði verið i Reykja-
vík. Engin tök voru á að hefta útbreiðslu veikinnar, þar sem smit-
berinn hafði víða komið. Tekið serum úr þeim, er veikina flutti, og
sprautað í 64 manns af þeim 151, sem veikina fengu. Börn innan 14
ára fengu 2,5 sm3 og fullorðnir 3—6 sm3 inn í vöðva. Flestir fengu
aðeins eina dælu (2,5 eða 3 sm3), en nokkrir fengu 2>(10 sm3 og' ein
gravida 3 dælur (14 sm3). Yfirleitt virtist árangurinn mjög góður.
Vopnafj. Fyrstu vitneskju um mislingana fékk ég 30. apríl. Var mér
þá tilkynnt i síma, að stúlka á Guðmundarstöðum hefði veikzt um
nóttina og væri öll með útþotuin, og þar eð hún vissi til þess, að hún
hefði komið til mislingasjúklings á Akureyri réttum hálfum mánuði
áður, án þess að vísu að geta um það við heimilisfólkið, fyrr en hún
var orðin veik, þá þótti sýnt, að um mislinga væri að ræða. Daginn
áður hafði hún verið á dansleik, og mátti því búast við, að inargir
hefðu smitazt af henni þar, en svo var þó ekki, því að aðeins 1 piltur
reyndist hafa smitazt af henni þar. Var piltur þessi frá Fossi. Um
smitun hans hef ég fengið þessar upplýsingar: Hann kom til að bjóða
upp í dans áður nefndri stúlku, og er hann stóð þar beint fyrir framan
hana, fékk lnin ákafa hóstahviðu, svo að nokkur töf varð á upp-
boðinu, en þetta leið strax hjá. Stúlkur, sem sátu við hlið dömunnar,
smituðust ekki. Hins vegar smitaðist af henni stúlka frá Hrappsstöð-
um, sem varð henni samferða heim og gisti á Guðmundarstöðum.
nóttina, sem hún veiktist. Á Guðmundarstöðum veiktust af mislingum
6, á Hrappsstöðum 8 og' á Fossi 5. Var sú smitun öll frá þessari einu
stúlku á Guðmundarstöðum. Næst varð mislinganna vart í Leiðarhöfn
30. maí. Veiktist þar ung'ur piltur, sem verið hafði á vertíð í Vest-