Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1943, Side 34
32
mannaeyjum. Mun hann hafa smitazt í Eyjum eða á Esju á leiðinni
heim. í Leiðarhöfn veiktust 5 heimilismenn, ungmenni og börn, og
auk þess smitaðist þar 1 drengur innan úr kauptúninu, sem þar var
heimagangur. Var hann einangraður á heimili sínu. í það sinn breidd-
ist veikin ekki frekar út. í þriðja sinn varð mislinganna vart 27. júní
á heimilinu Bjargi í Vopnafjarðarkauptúni. Veiktist þar kona, sem
komið hafði með Esju frá Breiðdalsvík. Telja má víst, að hún hafi
smitazt á Esju. Heimilið var einangrað, og veiktust þar siðar 2 börn,
sem þar áttu heima, eða 3 alls. Maður frá Síreksstöðum óð þar inn
í hús, þrátt fyrir aðvörun húsfreyjunnar um mislingahættu. Smitaðist
hann og' síðar 2 ungmenni af honum á Síreksstöðum. Mislingarnir
komu því á 6 heimili, og sýktust alls 31. Virtust mér mislingar þessir
álíka þungir og' mislingarnir 1936. Margir sjúklingarnir voru þungt
haldnir að útþotastiginu, en létti mjög fljótt, úr því að útþotin voru
komin alveg út. Alvarlegra fylgikvilla varð ekki vart. Enginn sjúk-
lingur dó. í mislingaserum náðist ekki, og var það því ekki reynt hér.
Fljótsdals. Bárust hingað fyrst í apríl með nemanda frá I,augar-
vatni. Ivomu þá aðeins á 2 bæi og voru stöðvaðir. En eftir að ferðir
urðu tíðari frá öðrum landshlutum, barst veikin hingað á nýjan leik
og breiddist talsvert út, þegar kom frarn á sumarið. Aldrei náði hún
þó almennri útbreiðslu, því að fólk varði sig eftir föngum. Hér í hér-
aðinu er fjöldi heimila, þar sem enginn maður hefur fengið mislinga,
jafnvel fólk um áttrætt. 1 kona á sextugsaldri dó úr veikinni. Hafði
verið rúmfastur aumingi árum saman.
Seyðisfi. Bárust hingað í desember frá Norðfirði með sjómanni, sem
vann hér að bátsviðgerð og var ó fótum, þangað til hann var allur
útsteyptur af mislingaútbrotum. Bjó sjómaður þessi í eina gistihús-
inu, sem hér er, og smitaði þar þá, sem smitazt gátu, enn fremur
sjómann frá Hornafirði, sem vann með honum við bátinn. Síðan smit-
aði sá sjúklingur 3 hörn í húsi þvi, sem hann bjó í. Þetta gerðist um
mislingaútbreiðsluna til áramóta. Venjulegar sóttvarnir voru við-
hafðar. Barst veikin í 2 önnur hús, og' tókst þá að kveða hana niður
(í marz 1944). Annan jóladag smituðust 2 systur, 9 og 12 ára, af hin-
um síðar nefnda sjómanni (annar smitunarmöguleiki var ekki til).
Sú yngri var frernur heilsutæp og því gefið mislingaserum á 6. degi
l'rá smitun (10 sm3). Hún veiktist 2 dögum eftir hina, en fékk hita
aðeins einn dag og mjög dauf útbrot. Eldri systirin fékk þunga misl-
inga, eins og allir, sem veiktust. Enginn vafi er á, að serum-inngjöfin
hefur dregið úr sjúkdóminum.
Norðfi. Fyrstu tilfellin fóru að berast að sunnan í maí—júni, fyrst
til Mjóafjarðar, og voru strax grunuð. Breiddist veikin því ekki xít,
í'yrr en fram i nóvember kom. Væg sótt. Sótthiti reyndar oftast hár
og vanlíðan, en fylgikvillar fáir og smáir og ekkert dauðsfall. Tið-
astar voru hvarmabólgur eftir á. Fáar lungnabólgur.
Fáskrúðsfi. Bárust hingað í júnímánuði með Esju úr Reykjavík,
breiddust ört út. Lögðust einkum þungt á unga og hrausta menn. í
sambandi við mislingana komu fyrir nokkur tilfelli af kveflungna-
bólgu.
Bernfi. Bárust á 1 bæ á Berufjarðarströnd í júlí. Hafði stúlka smit-